Þá er komið að síðustu lotu stóru ljósmyndakeppni Bílablaðs Morgunblaðsins, Toyota á Íslandi og Meguiar's.
Nú má senda inn myndir í keppni nóvembermánaðar, og að vanda fer keppnin fram með vinsældakosningu á Facebook.
Höfundar þriggja vinsælustu myndanna fá veglega Meguiar's-gjafapakka í boði Málningarvara og tíu vinsælustu myndirnar komast áfram í úrslit.
Dómnefnd sérfræðinga velur sigurvegarann í desember og fær hann ferð fyrir tvo á bílasýninguna í Genf í boði Toyota á Íslandi.
Efnistök eru frjáls en keppninni er ætlað að beina kastljósinu að bílaástríðu landsmanna.
Bandarískir kaggar hafa verið áberandi í keppninni.
Reglur keppninnar eru sem hér segir:
- Fyrst verður haldin forkeppni í fjórum umferðum: í ágúst, september, október og nóvember
- Kosning fer fram á Facebook-síðu Bílablaðs Morgunblaðsins: Facebook.com/bilafrettir og höfundar þeirra þriggja mynda sem fá flest „like“ í hverjum mánuði fá verðlaun frá Meguiar's
- Þær tíu myndir sem hljóta flest „like“ í hverjum mánuði fara í hóp úrvalsmynda sem lagðar verða fyrir sérstaka dómnefnd sem velur bestu ljósmyndina í desember
- Höfundur bestu ljósmyndarinnar fær í verðlaun ferð fyrir tvo á alþjóðlegu bílasýninguna í Genf í mars næstkomandi
Leiðbeiningar fyrir ljósmyndara:
- Ljósmyndir skal senda í tölvupósti á bill@mbl.is
- Frestur til að skila inn myndum í keppni mánaðarins er til kl. 23:59 laugardaginn 10. nóvember og hefst kosning að morgni sunnudagsins 11. nóvember.
- Myndir skal senda sem viðhengi, á jpg-sniði og skal myndin vera í hámarksupplausn.
- Fullt nafn rétthafa myndarinnar og símanúmer skal fylgja með auk lýsingar á myndefninu
- Hver þátttakandi getur aðeins sent inn eina mynd í hverjum mánuði
Jón Steinar átti vinningsmynd október af norðurljósadansi yfir heimilisbílnum.
Nánari skilmálar:
- Bílablað Morgunblaðsins áskilur sér rétt til að endurbirta, án endurgjalds, þær myndir sem berast í keppnina
- Starfsmönnum Árvakurs og fjölskyldum þeirra er ekki heimilt að taka þátt í keppninni
- Blaðið áskilur sér rétt til að hafna öllum innsendum myndum