Sólrafalar líka á bensín- og dísilbíla

Hyundai Motor Group hefur kynnt áætlun um að búa þök og jafnvel vélarhlífar tiltekinna bílgerða fyrirtækisins með sólrafölum til að auka eldsneytis- og orkunýtingu og draga úr útblæstri.

Von er á fyrstu bílunum með tækninni í lok næsta árs eða byrjun 2020, segir í tilkynningu Hyundai. Tæknin gerir ráð fyrir að sólrafalarnir hlaði rafmagni á rafhlöðu bílanna, hvort sem er bíla með sprengihreyfli eða tvinn-, tengiltvinn- eða rafbíla.

Í fyrsta áfanga innleiðingarinnar verða notaðar siliconsólarsellur, í öðrum fasa hálfgegnsæjar sólarsellur og í þriðja og síðasta áfanga í þróun tækninnar verður jafnvel hægt að láta léttan sólrafalahjúp þekja nær alla yfirbyggingu bílsins.

Í fyrstu kynslóð sellanna verður þak tvinnbíla Hyundai búnar sólrafölum sem eiga að geta hlaðið 30% - 60% daglegrar raforku inn á rafhlöðu bílsins, allt eftir því hvert birtustigið er hverju sinni.

Önnur kynslóð sellanna, hálfgegnsæjar sólarsellur, verða í fyrsta sinn í sögunni settar á bíla með bensín- eða dísilvél til að létta undir með  orkuframleiðslu vélarinnar og minnka eyðslu og útblástur.

Þriðja kynslóð rafalanna er svo einkum ætluð rafknúnum bílum, hvort sem er tvinn-, tengiltvinn- eða rafbílum enda þótt tæknilega verði ekkert því til fyrirstöðu að nota sellurnar líka á bensín- og dísilbíla.

mbl.is