Innkalla 1.611 Mitsubishibíla

Meðal innkallaðra bifreiða er Mitsubishi Outlander tengiltvinnbíllinn.
Meðal innkallaðra bifreiða er Mitsubishi Outlander tengiltvinnbíllinn.

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um innköllun á 1.611 Mitsubishi bifreiðum af árgerðunum 2017 til 2018.

Um er að ræða tegundirnar ASX, Eclipse (árgerð 2018) , Outlander og Outlander PHEV (árgerðir 2017 - 2018).

Ástæða innköllunarinnar er sú að við eftirlit kom í ljós villa í hugbúnaði fyrir stöðugleikakerfi sem gæti haft áhrif á ABS hemlakerfi virki ekki sem skyldi.

Viðgerð felst í hugbúnaðaruppfærslu sem tekur um það bil 20 mínútur.
Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Bifreiðaeigendur eru hvattir til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið séu þeir í vafa.

mbl.is