Aðventuboð á Mercedes-Benz bílum

Mercedes-Benz GLC og GLC verða á aðventutilboðinu hjá Öskju.
Mercedes-Benz GLC og GLC verða á aðventutilboðinu hjá Öskju.

Bílaumboðið Askja verður með aðventuboð á Mercedes-Benz bílum nk. laugardag, 8. desember kl. 12-16. Boðið verður upp á valda  bíla á sérstökum kjörum og með hverjum bíl fylgir veglegur aukahlutapakki.

Askja býður einnig sérstök kjör á aukahlutum og gjafavöru frá Mercedes-Benz en boðið verður upp á allt 30-45% afslátt af vörum þennan dag. Gestir geta auk þess tekið þátt í spennandi happdrætti með glæsilegum vinningum, að því er fram kemur í tilkynningu.

„Við ætlum að hafa notalega jólastemmningu hér hjá okkur með léttum jólaveitingum og bjóðum auk þess upp á ýmiss vegleg tilboð. Það er því tilvalið fyrir fólk að líta við og kaupa jólagjöf fyrir Mercedes-Benz aðdáendur á mjög góðu verði,“ segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz hjá Öskju.

mbl.is