Helmingur hraðamæla óvirkur

Óvirk hraðaratsjá skammt frá Bordeaux. Svörtu límbandi hefur verið vafið …
Óvirk hraðaratsjá skammt frá Bordeaux. Svörtu límbandi hefur verið vafið um linsur mælibúnaðarins. AFP

Að sögn frönsku útvarpsstöðvarinnar Europe 1 er helmingur sjálfvirkra hraðaratsjá í Frakklandi óstarfhæfur eða ónýtur.

Er þetta afleiðing uppreisnar svonefndra gulvestunga gegn pólitík Emmanuels  Macron forseta undanfarnar vikur. Hefur fólkið krafist betri kjara og aukins kaupmáttar.

Að minnsta kosti 250 sjálfvirkar hraðasjár hafa verið eyðilagðar í mótmælunum, aðallega með því að kveikt hefur verið í þeim.

mbl.is