Frumsýna Citroen Aircross

Citroen C5 Aircross verður frumsýndur hjá Brimborg á laugardag.
Citroen C5 Aircross verður frumsýndur hjá Brimborg á laugardag.

Nýi Citroen C5 Aircross jeppinn verður afhjúpaður á sýningu hjá Brimborg að Bíldshöfða 8 í Reykjavík næstkomandi laugardag, 23.febrúar.
 
Bíllinn er með kraftmikilli vél, 8 gíra sjálfskiptingu og Grip Control spólvörn. Hæð frá jörðu í lægsta punkt er 23 sentímetrar, sem kemur sér vel í snjó.

„Þetta er tímamótabíll í 100 ára sögu Citroen, magnaður lúxus með meiriháttar nýjungar eins og Progressive Hydraulic Cushions fjöðrunarkerfið og Advanced Comfort sætin. Upplifðu lúxusinnréttingu, breið sæti og háa sætisstöðu og sjáðu hvað hann er hár frá götu. Upplifðu lúxus,“ segir í tilkynningu frá Brimborg um sýninguna.

Þar segir ennfremur, að fjöðrun bílsins sé byltingarkennd en snjöll, einföld og áhrifarík. Á meðan hefðbundin fjöðrunarbúnaður er byggður upp af gormi og dempara með gúmmípúða í enda fjöðrunar þá bæti Citroen við vökvastoppara bæði að ofan og neðan í demparanum sjálfum. „Fjöðrunin virkar sérlega vel á ójöfnur í vegum en einnig í hvössum holum þar sem högg geta verið hörð eins og við dæmigerðar íslenskar aðstæður“.

Í boði eru tvær bensínvélar, PureTech 180 hestafla með 8 þrepa sjálfskiptingu og PureTech 130 hestafla með 6 gíra beinskiptingu. Tvær dísilvélar eru í boði með 8 þrepa sjálfskiptingunni, annars vegar 130 hestöfl og hins vegar 180 hestöfl og einnig fæst 130 hestafla dísilvélin með 6 gíra beinskiptingu.

Farangursgeymsla Citroen C5 Aircross jeppans er sú stærsta í sínum flokki frá 580 til 720 lítrar. Aftursætin þrjú eru stök, jafnbreið og öll á sleðum, sem gerir m.a. kleift að hafa þrjá barnastóla í einu í bílnum.

Í nýjum C5 Aircross eru 20 aksturskerfi sem aðstoða ökumanninn  og veita aukið öryggi í akstri m.a. ef þreyta gerir vart við sig. Kerfin greina hugsanlegar hættur og lágmarka þannig hættu á árekstri. Citroeninn er tilnefndur sem bíll ársins í Evrópu 2019.

Gestum Brimborgar á laugardag gefst tækifæri til að prófa C5 Aircross jeppann.

Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
Citroen C5 Aircross
mbl.is