Kia e-Niro frumsýndur

Kia e-Niro er hreinn rafbíll. Hann verður frumsýndur á Íslandi …
Kia e-Niro er hreinn rafbíll. Hann verður frumsýndur á Íslandi laugardaginn kemur, 16. mars.

Bílaumboðið Askja frumsýnir rafbílinn Kia e-Niro nk. laugardag klukkan 12-16 í nýjum húsakynnum Kia að Krókhálsi 13. Þetta er ný útgáfa af Kia Niro sem fæst nú þegar í tvinn- og tengiltvinnútfærslum. Þessi nýjasta útfærsla Kia e-Niro er 100% hreinn rafbíll og hefur því engan útblástur.

Kia e-Niro er með nýrri og tæknivæddri 64 kWh litíumjóna rafhlöðu sem skilar bílnum drægi upp á alls 455 km í blönduðum akstri og allt að 615 km í borgarakstri, skv. nýjum mælingum WLTP. Rafmótorinn skilar alls 204 hestöflum og 395 Nm í togi. Bíllinn er aðeins 7,8 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða.

Kia e-Niro er framhjóladrifinn eins og Niro Hybrid og Plug-in Hybrid. Rafhlaðan er undir farangursrýminu sem myndar lágan þyngdarpunkt og tryggir hámarks stöðugleika og akstursánægju. Bíllinn var upphaflega kynntur sem Niro EV á bílasýningunni í Busan í Suður-Kóreu síðasta sumar en nafni hans hefur verið breytt í e-Niro fyrir evrópskan markað.

„Við erum gríðarlega spennt að fá nýjan Kia e-Niro hingað til lands og við finnum fyrir mjög miklum áhuga á bílnum. Kia Niro hefur verið mjög vinsæll hér á landi sem og annars staðar í heiminum. Alls hafa 200.000 eintök af bílnum selst á heimsvísu frá því hann kom fyrst á markað árið 2016. Það er deginum ljósara að þessi nýi rafbíll mun verða mjög vinsæll hér á landi miðað við þá eftirvæntingu sem ríkir fyrir komu hans. Í lok þessa árs verða á boðstólnum tvær gerðir Hybrid bíla, þrjár gerðir Plug-in Hybrid bíla og tvær gerðir 100% rafbíla þannig að alls verðum við með sjö mismunandi útfærslur af rafknúnum Kia bílum hér hjá Öskju. Og það er meira á leiðinni á komandi misserum,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Bílaumboðinu Öskju, sem er umboðsaðili Kia á Íslandi.

Kia e-Niro er annar hreini rafbíllinn sem Kia framleiðir en fyrir er rafbíllinn Kia Soul EV sem verið hefur vinsæll hér sl ár. Kia mun bjóða 16 rafknúna bíla árið 2025 sem verða hreinir rafbílar, tvinn- eða í tengiltvinn útfærslum.

mbl.is