Vinnan breyttist í hruninu

Hinrik Laxdal.
Hinrik Laxdal. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hinrik Laxdal eigandi Íspartar – Vélavit snéri vörn í sókn í bankahruninu og stofnaði fyrirtækið sem flytur bæði inn vinnuvélar og gerir við þær. Hann segir að byggingarmarkaðurinn hafi ekki tekið neinum stökkbreytingum frá hruni en fólk fari varlegar í dag en það gerði fyrir hrun.

Áður en bankahrunið átti sér stað starfaði Hinrik Laxdal hjá fyrirtæki sem flutti inn vinnuvélar. Í hruninu hrundi sá markaður og því ákvað hann að snúa vörn í sókn og stofnaði fyrirtæki sem sérhæfir sig í því að gera við vinnuvélar.  

„Ég fór úr því að selja vinnuvélar yfir í það að þjónusta vinnuvélar. Sala á gröfum hrundi í hruninu en það vantaði fólk sem kunni að gera við þær,” segir Hinrik og segir að það hafi gengið vel. Í dag starfa fjórir hjá fyrirtækinu sem gerir ekki bara við vinnuvélar heldur flytur inn frá fyrirtækjum eins og Hydrema, Sunward og Dehaco svo einhver merki séu nefnd.

„Að stofna þetta fyrirtæki var tækifæri til að gera eitthvað því ástandið var þannig, það gat ekki versnað. Í dag eru við mikið í viðgerðum á öllum vinnuvélum.”

Vinnuvélar eru eins misjafnar og þær eru margar. Er alltaf hægt að gera við þær?

„Já, það er nánast alltaf hægt,” segir hann og segir að verkefnin séu afar fjölbreytt. Enginn dagur sé eins og allt milli himins og jarðar geti gerst.

Þegar Hinrik er spurður að því hvað honum finnist skemmtilegast að gera í vinnunni kemur eitt nokkuð forvitnilegt í ljós.

„Mér finnst skemmtilegast að leysa rafmagnsvandamál. Þau geta tekið á og það er bara svo gaman þegar maður reynir að leysa þau,” segir hann.

Nú eru nýir bílar mikið tölvuvæddir. Er það eins með vinnuvélarnar?

„Við erum með mikið af tölvubúnaði til að vinna þann hluta. Það er stöðug þróun sem þarf að fylgjast með þar. Það er samt ekki eins mikið af tölvubúnaði í vinnuvélum eins og í bílum, það er örlítið minna. Tölvubúnaður hefur þó aukist töluvert í vinnuvélum síðari ár,” segir hann.

Hvernig er vinnuvélabransinn að breytast?

„Mér finnst hann ekki mikið vera að breyst. Það er allt mjög svipað og það var í kringum 2005 og 2006. Eina breytingin er kannski að í dag eru verktakar með meira af tækjum og tólum til að vinna verkin,” segir hann.

Hvaða vinnuvél er vinsælust þessa dagana?

„Það er ekki hægt að tala um vinsælustu vinnuvélina. Við seljum ekki magar Hydrema gröfur því þær eru dýrar og fjölhæfar. Það er lítill kúnnahópur að kaupa þær vélar. Við erum kannski að selja tvær til þrjár þannig á ári.”

Hvernig finnst þér þróunin vera í vinnuvélabransanum?

„Ég held þetta haldi áfram eins og þetta hefur verið síðustu ár. Það virðist vera nóg að gera hjá öllum og ég held að hrunið hafi gert það að verkum að fólk fer svolítið varlegar núna.”

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is