Suzuki innkallar 490 bíla

Suzuki Swift.
Suzuki Swift.

Suzuki Bílar hafa ákveðið að innkalla 490 Suzuki Swift bifreiðar sökum forritunargalla í tölvu fyrir líknarbelgjabúnað.

Getur búnaðurinn orðið virkur ef afturhurð er skellt aftur. Við það getur gardínu- og hliðarvörn ásamt sætisbeltastrekkjara sprungið út og í versta tilfelli orsakað slys á farþegum.

Við innköllun verður líknarbelgjatölva bifreiðanna uppfærð. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis og bréfleiðis. Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

mbl.is