Glænýr Mazda3 frumsýndur á laugardag

Mazda3 stallbakurinn nýi verður frumsýndur hjá Brimborg á laugardag, 15. …
Mazda3 stallbakurinn nýi verður frumsýndur hjá Brimborg á laugardag, 15. júní.

Brimborg blæs til sýningar Mazda á laugardaginn í Reykjavík. Verður frumsýndur nýr Mazda3 stallbakur. Til viðbótar verða Mazda2, Mazda CX-5 og Mazda6 stallbakur á einstökum sýningartilboðum.

Sýningin er haldin í sýningarsal Mazda við Bíldshöfða 8 í Reykjavík. Opið frá kl. 12-16

Frumsýningarbíllinn er með nýrri M-Hybrid tækni sem minnkar eldsneytisnotkun, dregur úr losun koltvíildis og eykur afl, að því er  fram kemur í tilkynningu. Er bíllinn vel búinn að stuðningskerfum.

„Mazda3 er hannaður með hegðun og hreyfingu mannsins að leiðarljósi svo þú upplifir afburða akstur. Með SkyActiv -bíltækninni bregst Mazda3 við öllum fyrirætlunum þínum með fyrirsjáanlegum viðbrögðum. Innra rýmið hefur verið hannað með einstökum gæðaefnum og með notandann í fyrirrúmi,“ segir í tilkynningunni.

Ytri hönnun Mazda3 stallbaksins er fögur þar sem flæðandi línur, ljósabúnaður og margvísleg önnur natni við smáatriði gefa bílnum ásýnd lúxusbíls. Mazda3 býður upp á hljóðlátt innra rými þar sem veghljóð hafa verið lágmörkuð.

M-Hybrid tvinnkerfið er alsjálfvirkt en það nýtir hreyfiorkuna sem verður til við hemlun og nýtir þegar á meira rafmagni þarf að halda eins og  t.d að ná aukni afli við upptak.

Mazda hefur lengi notið mikilla vinsælda á Íslandi í áratugi. Nýi bíllinn kostar frá krónum 3.490.000 krónum, samkvæmt upplýsingum frá Brimborg.

mbl.is