Leiðrétt: Ráðherra bjargaði kú

Sigurður Ingi Jóhannsson bak við stýrið á fallegum traktor. Sigurður …
Sigurður Ingi Jóhannsson bak við stýrið á fallegum traktor. Sigurður velur nokkur ökutæki í bílskúr drauma sinna í Bílablaðinu í dag.

Þau vandræðalegu mistök voru gerð í Bílablaði Morgunblaðsins, sem kom út í dag, að rangt fall var notað í fyrirsögn á viðtali við Sigurð Inga Jóhannsson. Rétt hefði verið að skrifa að Sigurður hefði, þegar hann starfaði sem dýralæknir, ekið „[á] fleygiferð til að bjarga kú og kálfi“, en ekki „kýr og kálfi“.

Eru lesendur, og ráðherra, beðin afsökunar á þessari fljótfærnivillu, sem skýtur þó reglulega upp kollinum í máli unga fólksins. Er þeim fjölmörgu lesendum sem hringdu í blaðið í morgun vegna þessa þakkað fyrir að veita okkur aðhald.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: