Porsche flytur í Krókháls 9

Porsche er flutt í sýningarsal Bílabúðar Benna að Krókhálsi 9.
Porsche er flutt í sýningarsal Bílabúðar Benna að Krókhálsi 9.

Porsche á Íslandi hefur eignast nýtt heimili. Er umboðið flutt af Vagnhöfðanum í sýningarsal Bílabúðar Benna að Krókhálsi 9.

Fram kemur í tilkynningu frá Bílabúðinni að efnt verði til veglegrar sýningar af þessu tilefni laugardag kemur, 22. júní. Verða þar kynntir margir glæsilegir gripir, eins og segir í tilkynningu.

mbl.is