Býður nýja Citroen bíla með 5 ára ábyrgð

Citroen C5 Aircross.
Citroen C5 Aircross.

Brimborg býður nú alla nýja Citroenbíla með fimm ára ábyrgð. Um er að ræða víðtæka verksmiðjuábyrgð sem gildir fyrir bæði fólksbíla og sendibíla Citroen.

„Fimm ára ábyrgð Citroen er mikilvægur þáttur í að styrkja samband okkar við eigendur bílanna. Í eigenda og þjónustuhandbók ásamt  viðauka við skilmála Citroen finnur þú greinargóða lýsingu á ábyrgðinni, skyldum Citroen og Citroen eigenda, upplýsingar um það sem ábyrgðin nær og nær ekki til, ábyrgð gagnvart gegnumtæringu, ábyrgð á varahlutum, takmörkun ábyrgðar, skýrslur um reglubundið viðhald, ryðvarnareftirlit, skýrslur um endurnýjun kílómetrateljara, síma- og netfangaskrá, upplýsingar um þjónustutíma deilda, auk annarra hagnýtra upplýsinga,“ segir í tilkynningu.

Til að uppfylla ábyrgðarskilmálana þarf að fara með nýja Citroenbílinn í reglubundið þjónustueftirlit. Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit á 12 mánaða eða 15.000 km fresti hvort sem kemur á undan. Kaupandi ber kostnað af þeim.

Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Citroen geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgðina.

Citroen Grand Spacetourer
Citroen Grand Spacetourer
Citroen Berlingo sendibíll.
Citroen Berlingo sendibíll.
Citroen Cactus
Citroen Cactus
Citroen Jumpy, léttur atvinnubíll.
Citroen Jumpy, léttur atvinnubíll.
Citroen C3 Aircross
Citroen C3 Aircross
Citroen C3
Citroen C3
Citroen C4 Spacetourer
Citroen C4 Spacetourer
mbl.is