Toyota flýtir rafvæðingunni

Toyota Prius hefur verið í fararbroddi meðal tvinnbíla frá því …
Toyota Prius hefur verið í fararbroddi meðal tvinnbíla frá því hann kom á markað. mbl.is/Árni Sæberg

Á upplýsingafundi hjá Toyota í Tókýó  í vikunni kom fram að stefnubreyting hefur átt sér stað hjá japanska bílrisanum varðandi rafvæðingu smíðisbílanna.

Breytingin felst í því  að nú stefnir  Toyota að því að koma sölunni upp í  5,5 milljónir tvinnbíla, tengiltvinnbíla, vetnisbíla og hreina rafbíla á árinu 2025.

Fyrir hálfu öðru ári hljóðuðu áætlanir Toyota um að ná þessu framleiðslu- og sölumagni í fyrsta lagi árið 2030. Í breyttum áherslum reiknar Toyota með að smíða milljón hreinna rafbíla á ári 2025.

mbl.is