Clio ógnar veldi Golf

Renault Clio ógnar veldi VW Golf í Evrópu.
Renault Clio ógnar veldi VW Golf í Evrópu.

Um árabil hefur Volkswagen Golf verið söluhæsti fólksbíll Evrópu mánuð eftir mánuð. Nú virðist sem veldi hans sé ógnað, af Renault Clio.

Í nýliðnum maí-mánuði seldi Renault 33.000 bíla á Evrópumarkaði sem var aukning um 3,2%. Á sama tíma dróst sala Golf saman um 11,8% og nam 36.000 bílum.

Í næstu sætum urðu módelin Dacia Sandero, Skoda Octavia og Fiat 500.  

Keppnin um toppsætið fer á fullt með haustinu er bæði Renault og VW koma á markað með nýjar útgáfur Clio og Golf.

mbl.is