Stýrishjólið hitnar og kólnar á víxl

Stýrið magnaða er á góðri leið með að verða margslungið …
Stýrið magnaða er á góðri leið með að verða margslungið öryggistæki.

Þeir sem kjósa að keyra bíla sína með vettlinga á höndum í köldum bíl í morgunsvala þurfa þess kannski ekki mikið lengur því nú er verið að þróa stýri sem hitnar og kólnar á víxl, eftir þörfum.

Nýtt tæknivætt stýrishjól í bíla, sem Jaguar Land Rover hefur þróað í samstarfi við vísindamenn háskólans í Glasgow, gæti sömuleiðis hjálpað ökumönnum að halda betur einbeitingu sinni við aksturinn.

Stýrið er búið fjölda skynjara sem tengdir eru leiðsögukerfi bílsins. Þeir hita og kæla stýrið á víxl til að viðhalda einbeitingu ökumannsins. Minnir stýrið hann til dæmis á þegar fram undan er vinstri- eða hægribeygja sem kemur sér vel þegar skyggni er slæmt.

Þá lætur stýrið ökumanninn einnig vita þegar tímabært er að skipta um akrein eða þegar frárein eða gatnamót nálgast sem taka þarf tillit til, til að halda réttri leið á ætlaðan áfangastað. Þessari nýju tækni er einnig ætlað hlutverk í sjálfakandi bílum Jaguar Land Rover í framtíðinni.

Gæti dánartíðni lækkað?

Athyglisbrestur ökumanna undir stýri er alvarlegt vandamál í umferðinni um allan heim. Er til að mynda fullyrt að um 10% banaslysa í umferðinni í Bandaríkjunum séu af völdum einbeitingarskorts ökumanna. Sérfræðingar Jaguar Land Rover telja að nýja stýrishjólið geti nýst til að draga úr tíðni þessarar tegundar umferðarslysa.

Hægt er að stilla hitastig stýrisins en tæknin gerir ráð fyrir að hitinn geti farið í allt að 60°C. Þá gerir tæknin einnig ráð fyrir að hana megi nota til annarra hluta eftir þörfum og smekk ökumanns. Þannig mun stýrið geta látið vita þegar tímabært er að taka eldsneyti eða jafnvel til að vekja athygli á áhugaverðum stað í nágrenninu.

agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: