Auglýsing bönnuð

Tvinnbíllinn KIA Optima.
Tvinnbíllinn KIA Optima. AFP

Neytendastofa hefur bannað Bílaumboðinu Öskju að markaðssetja DRIVE WiSE aksturstækni Kia Optima tengiltvinnbíla með þeim hætti sem gert hefur verið í auglýsingu.

Neytendastofu barst erindi Neytendasamtakanna vegna markaðssetningar Öskju. Kvörtunin varðaði auglýsingu sem birtist á vefsíðu fyrirtækisins þar sem fram kom að umræddar bifreiðar innihaldi ákveðna tæknieiginleika, s.s. sjálfvirka neyðarhemlun, sjálfvirka bílastæðalögn, akreinavara og hátæknivæddan hraðastilli með aðlögun, án þess að allir þessir eiginleikar hafi verið fáanlegir í umræddri tegund bifreiða frá félaginu, að því er segir á heimasíðu Neytendastofu.

Komst stofan að þeirri niðurstöðu að umræddar upplýsingar væru líklegar til að valda því að hinn almenni neytandi sem auglýsingin beinist að, taki viðskiptaákvörðun sem hann myndi ekki annars hafa tekið og hafi því verið villandi. Því bannaði Neytendastofa Öskju að viðhafa ofangreinda viðskiptahætti.

Ákvörðun Neytendastofu nr. 28/2019 má lesa í heild sinni hér.

mbl.is