Spyrna við fótum í mælaborðið

Varasamt getur verið að spyrna fótum í mælaborðið því komi …
Varasamt getur verið að spyrna fótum í mælaborðið því komi til áreksturs getur það valdið alvarlegum fótameiðslum.

Þegar fólk á sér einskis ills von á það til að panikkera ef skyndiega virðist stefna í hættu. Til dæmis af völdum nálgandi farartækis.

Í fáti sínu bregst það við með ýmsum hætti. Helst með því að grípa í eitthvað til að styðja sig við eða spyrna við fæti.

Þannig segir franska bílaritið Auto Plus rannsóknir sýna, að fjórðungur framsætisfarþega setji fæturna upp á mælaborðið og spyrni fast ef það verður skelkað vegna ímyndaðrar eða raunverulegrar hættu.

Komi til áreksturs gæti það reynst afdrifaríkt því líknarbelgur mælaborðsins skýst út á 300 km hraða og myndi skilja eftir sig alvarleg meiðsl.

Samtökin Prevention routiere, sem láta sig umferðaröryggi vara, segja að sumarið sé besti tíminn til að slaka á hraðanum og gæta vel að sér. Hvetja þau ökumenn til að láta af því að stjórna bíl klæddir sandölum. Það sé óheppilegur skófatnaður undir stýri en 41% ökumanna brúkar hann á sumrin. Jafnframt að muna betur eftir stefnuljósunum sem gleymist í sex tlvikum af tíu.

mbl.is