Sala á rafbílum næstmest á Íslandi

Hleðslustöðvar má finna víða.
Hleðslustöðvar má finna víða.

Sala bíla sem eingöngu ganga fyrir rafmagni hefur aukist um 52% á fyrri helmingi ársins hérlendis samanborið við fyrri helming síðasta árs. Þetta kemur fram í nýjum samanburði vefritsins EV-Volumes.com.

Þar kemur einnig fram að Íslendingar séu í öðru sæti meðal Evrópuþjóða þegar litið er til hlutdeildar seldra rafbíla af seldum nýjum bílum í hverju landi fyrir sig. Norðmenn sitja í efsta sætinu.

Rafbílar og tengiltvinnbílar eru nú fjögur til fimm prósent af heildarbílaflota Íslendinga, að því er fram  kemur í umfjöllun um rafvæðingu bílaflotans í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina