Hyundai kynnir nýja hönnun í Frankfurt

Rafknúni hugmyndabíllinn Hyundai 45.
Rafknúni hugmyndabíllinn Hyundai 45.

Á bílasýningunni í Frankfurt sem haldin verður dagana 10.-22. september, hyggst Hyundai kynna nýja og breytta hönnun sem tileinkuð verður rafbílum fyrirtækisins í framtíðinni.

Skarpar línur í hönnun hugmyndabílsins á meðfylgjandi mynd sækja innblástur til stílhreinna lína og naumhyggju Pony Hatchback, fyrsta fjöldaframleidda fólksbíls Hyundai frá áttunda áratugnum.

Það kemur þó betur í ljós í Frankfurt hvert Hyundai hyggst stefna í hönnun ytri ásýndar bílsins.

Hyundai 45, eins og rafknúni hugmyndabíllinn kallast, endurspeglar áherslu Hyundai á framsækna hönnun um leið og núverandi megineinkenni núverandi kynslóða um sportlega ásýnd, góð afköst og mikla akstursánægju eiga að halda gildi sínu í næstu kynslóðum.

Hulunni verður svipt af Hyundai 45 að morgni þriðjudags 10. september í sýningarsal framleiðandans í Frankfurt ásamt ýmsum nýjum framtíðarhugmyndum á tæknisviði sem Hyundai hyggst kynna í nýjum bílum í nánustu framtíð.

mbl.is