0,0 % vextir á notuðum bílum

Bílabúð Benna býður upp á vaxtalaus greiðslukjör.
Bílabúð Benna býður upp á vaxtalaus greiðslukjör.

Bílabúð Benna hefur ákveðið að fara þá nýju leið að bjóða vaxtalaus lán til kaupa á völdum notuðum bílum.

Í tilkynningu segir Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna að þessi áfangi hafi átt sér nokkurn aðdraganda. „Við leitum sífellt nýrra leiða til að geta veitt viðskiptavinum okkar betri kjör og erum stolt af því að geta nú boðið 0% vexti í samstarfi við Lykil fjármögnun,“ segir Benedikt.

„Undir þessa skilmála fellur breitt úrval notaðra bíla hjá okkur af öllum stærðum og gerðum, bæði notaðir bílar af bílasölunni okkar á Krókhálsi sem og frá Bílaleigunni Sixt,“ bætir  hann við.

Fram kemur í tilkynningu, að að umræddir 0% vextir verði í boði hjá Bílabúð Benna – Notuðum bílum í takmarkaðan tíma.

mbl.is