Brimborg frumsýnir Ford Focus Active

Ford Focus hinn nýi í mismunandi útgáfum verður frumsýndur hjá …
Ford Focus hinn nýi í mismunandi útgáfum verður frumsýndur hjá Brimborg á laugardag.

Brimborg frumsýnir næstkomandi laugardag, 21. september, glænýjan Ford Focus Active. Hann er í nýrri Active útgáfu sem er alveg nýtt hugtak fyrir Ford Focus.

„Jeppa-innblásin hönnun sameinar form og virkni sem skilar enn öflugri bíl,“ segir í tilkynnningu. Þar segir ennfremur: „Ford Focus Active er kröftugur og fjölhæfur bíll sem er bæði hagnýtur og sveigjanlegur. Hann blandar saman fjölhæfni jeppa og akstursupplifun í fremstu röð sem Focus er þekktur fyrir.  Hann er hátt frá jörðu sem gefur betri yfirsýn og þægilegra aðgengi.  Kantar á hliðum gefa bílnum jeppalegra útlit og verja jafnframt hliðar bílsins“ segir í tilkynningu.

Hinn nýi Focus er sagður stútfullur af snjöllum lausnum, þar með talið 5 mismunandi akstursstillingar. Þessar stillingar eru Normal, Eco, Sport, Trail og Snow. Þær gera það að verkum að bíllinn dugar vel við mjög mismunandi akstursaðstæður. Þær stilla meðal annars af inngjöf, stýrisstillingu sem og gírskiptingu á sjálfskiptum bílum.  Að auki þá breyta þær fjöðrun bílsins og nýta stöðugleikastýrikerfið og spólvörnina til að bíllinn hafi alltaf besta mögulega grip við hinar ýmsu aðstæður.

Hægt er að vera sítengdur við bílinn með FordPass, sem hjálpar til við að finna staðsetningu bílsins. Þetta forrit upplýsir um bensínmagn, olíumagn, birtir viðvaranir og fleira. Einnig er hægt að opna og læsa bílnum sem og að starta honum með símanum einum.

„Alveg nýr Ford Focus Active hefur harðgert og sportlegt ytra útlit, sérlega rúmgóður að innan og vel búinn. Sérhver þáttur er hannaður til að gera akstursupplifunina enn ánægjulegri. Til dæmis er flipaskipting í stýri í sjálfskiptum og 8" snertiskjár, SYNC 2, og 2x USB tengi.

Flottur stíll og fyrsta flokks gæði haldast í hendur við gott skipulag því öll stjórntæki eru í seilingarfjarlægð. Hönnuðir Ford hafa séð til þess að hvert smáatriði er úthugsað.  Ford Focus Active Station hefur 608 lítra farangursrými,“ segir í tilkynnnigu.

mbl.is