Kia XCeed frumsýndur

Kia XCeed var nýlega reynsluekið í og við Marseille í …
Kia XCeed var nýlega reynsluekið í og við Marseille í Frakklandi. mbl.is/Ágúst Ásgeirsson

Bílaumboðið Askja frumsýnir Kia XCeed í Kia húsinu að Krókhálsi 13 nk. laugardag klukkan 12-16. XCeed er glænýr borgarjepplingur og sporlegur í útliti. Forsala á XCeed í rafmagnaðri tengiltvinn útfærslu með 58 km drægi er þegar hafin.

„Hönnunin á XCeed er falleg og sportleg og mikið er lagt í innanrýmið sem er vandað og vel búið í efnisvali og þægindum. Bíllinn er með með 184 mm veghæð og ökumaður hefur því góða yfirsýn. Umgengni um bílinn er þægileg og ökumaður og farþegar sitja hátt í bílnum. Bíllinn er með 426 lítra farangursrými með aftursætin uppi. XCeed er einn tæknivæddasti bíllinn í sínum flokki og má þar nefna 10,25“ upplýsingaskjá og 12,3“LCD mælaborð. Þá er XCeed í boði með tæknivæddu UVO kerfi sem bætir enn frekar tengimöguleika varðandi afþreyingu og akstursupplýsingar og gefur ökumanni enn betra aðgegni að umheiminum og því sem er að gerast í kringum hann í akstrinum,“ að því er fram kemur í tilkynningu.

Kia XCeed er búinn öllum nýjasta öryggis- og aðstoðarbúnaði, en hann er hannaður í hönnunarmiðstöð Kia í Frankfurt í Þýskalandi undir handleiðslu Gregory Guillaume, aðstoðarforstjóra hönnunardeildar Kia Motors í Evrópu.

Samkvæmt upplýsingum frá Öskju verður XCeed fyrst fáanlegur með 1,4 bensínvél, drifi á framhjólunum og 7 þrepa DCT sjálfskiptingu og 1,0 lítra bensínvél með 6 gíra beinskiptingu. Á næsta ári kemur XCeed í rafmagnaðri tengiltvinnútfærslu. Á næsta ári mun Askja einnig fá Ceed Sportswagon í tengiltvinnútgáfu. Samhliða frumsýningunni á XCeed nk laugardag mun Askja opna á forpantanir á þessum tveimur tengiltvinnbílum. Áætlað drægi þeirra er 58 km á rafmagni.

Í næsta bílablaði Morgunblaðsins verður grein um reynsluakstur Kia XCeed.

Kia XCeed kemur á götuna sem tengiltvinnbíll í byrjun næsta …
Kia XCeed kemur á götuna sem tengiltvinnbíll í byrjun næsta árs, 2020. mbl.is/Ágúst Ásgeirsson

mbl.is