Mitsubishi kynnir sjöttu kynslóð L200

Fyrsti fulltrúi sjöttu kynslóðar Mitsubishi L200.
Fyrsti fulltrúi sjöttu kynslóðar Mitsubishi L200.

Næstkomandi laugardag, 16. nóvember, verður sjötta kynslóð Mitsubishi L200 frumsýnd í Mitsubishisalnum að Laugavegi 170 – 174 og stendur frá kl. 12 – 16.

L200 byggir á rúmlega 40 ára grunni sem hófst með tilkomu pallbílsins Forte árið 1978. Hann var fyrsti pallbíllinn með veggripsstýringu, hemlunaraðstoð og merkjakerfi neyðarstöðvunar sem lætur aðra ökumenn vita um hættu í aðsigi.

„Það var því ekki gefinn neinn afsláttur þegar kom að sjöttu kynslóðinni. Kappkostað var að gera hana magnaða og hönnunin var unnin eftir kröfum viðskiptavina um harðgerðan, traustan og kraftmikinn pallbíl. Útkoman er grjóthart útlit og uppfært fjórhjóladrif með nýrri utanvegarstillingu og brekkustoð.

Nýr L200 er með nýja 2,2 lítra Mivec-dísilvél sem er innan marka Euro 6d-TEMP reglugerðar um nýja útblástursstaðla í Evrópu, nýja sex gíra sjálfskiptingu, uppfærðan undirvagn, bremsur og nýja fjöðrun. Dráttargeta L200 er 3000-3100 kg, hann er 150 hestöfl og togar 400 Nm,“ segir í tilkynningu.

Meðal staðalbúnað L200 er samlæsing með lyklalausu aðgengi, rafdrifnar rúður að framan og aftan, hitaðir og rafdrifnir hliðarspeglar, hituð leðursæti og tveggja svæða loftræsting. Úrval aukahluta hefur aukist og meðal nýrra öryggiskerfa má nefna akreinavara, árekstravara að framan, viðvörun um umferð fyrir aftan og UMS-kerfi sem dregur úr mishröðun.

L200 er með fjórar stjörnur í Euro NCAP og hlaut nýverið Carbuyer verðlaunin sem besti pallbíllinn, þriðja árið í röð.

Fyrsti fulltrúi sjöttu kynslóðar Mitsubishi L200.
Fyrsti fulltrúi sjöttu kynslóðar Mitsubishi L200.
Fyrsti fulltrúi sjöttu kynslóðar Mitsubishi L200.
Fyrsti fulltrúi sjöttu kynslóðar Mitsubishi L200.
mbl.is