Fyrsta Hondasýningin á Fosshálsi

Honda hátíð verður í Öskju á laugardag.
Honda hátíð verður í Öskju á laugardag.

Sérstök hátíð bílaumboðsins Öskju verður haldin í nýjum sýningarsal að Fosshálsi nk. laugardag, 23. nóvember klukkan 12 til 16, í tilefni þess að Askja hefur tekið við umboði fyrir Honda á Íslandi.

Í tilefni dagsins fylgja Goodyear vetrardekk og hágæða lakkvörn með öllum seldum Honda bílum á sýningunni.

Honda býður upp á fólksbílana Jazz og Civic, borgarjepplinginn HRV og sportjeppann CRV sem er einn mest seldi bíllinn á Íslandi, að því er segir í tilkynningu. „Bílar frá Honda eru þekktir fyrir hágæða hönnun og smíði, nýjustu tækninýjungar, mikinn áreiðanleika og margverðlaunað öryggi," segir þar.

Honda hefur markað sér afgerandi stefnu í rafvæðingu og á næstu 36 mánuðum mun Honda kynna sex nýja umhverfisvæna bíla á markað í Evrópu. Þar af verða tveir rafbílar og fjórir hybrid bílar. Nýr Honda e rafbíll og Honda Jazz í tvinnútfærslu eru fyrstu bílarnir af þessum sex nýju, umhverfisvænu bílum og koma báðir á næsta ári.

Öll þjónusta og sala nýrra bíla, mótorhjóla, fjórhjóla og aflvéla frá Honda er nú hjá Öskju. Söludeild og sýningarsalur Honda er á Fosshálsi 1 en verkstæði, þjónusta og varahlutasala fyrir Honda bíla er í höfuðstöðvum Öskju á Krókhálsi 11.

Allir nýir Honda bílar sem keyptir eru hjá Öskju eru nú með 5 ára ábyrgð. Einnig býðst 5 ára þjónustusamningur með nýjum Honda bílum með föstu mánaðargjaldi þar sem öll þjónusta er innifalin í 5 ár.

mbl.is