Tvöfaldur sigur Ford

Ford-bílarnir sigursælu.
Ford-bílarnir sigursælu.

Ford hrósaði í vikunni tvöföldum sigri á verðlaunahátíð fyrir atvinnubíla, sem fram fór á flutningabílasýningunni Solutrans í Lyon í Frakklandi í vikunni.

Hlaut Transit Custom Plug-In Hybrid viðurkenninguna sendibíll ársins 2020 (IVOTY) og Ford Ranger var valinn „skúffubíll“ ársins (IPUA). Þetta er í sjötta sinn sem fyrrnefnda viðurkenningin fellur Ford í skaut.

Ford er fyrsti bílaframleiðandinn sem hefur unnið bæði IVOTY og IPUA titla á sama ári tvisvar sinnum. Fyrra skiptið var árið 2013.

Dómnefnd viðurkenninganna skipuðu 25 bílablaðamenn frá 25 Evrópulöndum. Í ´rökstuðningi sínum lagði hún sérstaka áherslu á fjölbreytt úrval vélaafbrigða sem eru í boði fyrir Ford  Transit Custom Hybrid sendibifreiðarnar. Tvinnvélar Ford bjóða upp á skilvirkari eldsneytisnotkun og minni losun gróðurhúsalofts án þess að skerða hagkvæmni og akstursvirkni.

Ford Ranger, sem hlaut IPUA verðlaunin, heillaði með öflugri og sparneytinni 2,0 lítra EcoBlue dísilvél og háþróuðum búnaði sem auðvelda ökumönnum störfin. Alþjóðlegu pallbílaverðlaunin IPUA eru veitt annað hvert ár en dómnefndin er samansett af 18 sérfræðingum um pallbíla.

Auk þessa varð tveggja tonna Ford Transit Custom EcoBlue Hybrid í öðru sæti í keppninni um IVOTY titilinn. Þannig voru þrír mismunandi Ford Transit rafmagnsblendingar í fyrsta og öðru sæti á verðlaunahátíðinni International Van of the Year 2020.

Hinn glænýi Ford Transit Custom Plug-in Hybrid kemur til Íslands næsta haust, 2020. Framhjóladrifinn sendibíll sem getur keyrt allt að 56 km (NEDC) á rafmagni einu saman og er með 92,9 kW rafmótor með 13,6 kWst litíumjónarafhlöðu. Hin margverðlaunaða og sparneytna 1,0 lítra EcoBoost bensínvél frá Ford er í bílnum og hún virkar einnig sem framlenging á drægið því hún hleður rafhlöðuna á ferð ásamt því að virkja hemlunarorkuna og hlaða henni niður á rafgeyminn. 

Ford í Evrópu hefur á þessu ári selt 114.000 Transit Custom á fyrstu 10 mánuðum ársins. Ford Ranger er jafnframt mest seldi pallbíll Evrópu með 43.300 bíla selda yfir sama tímabil, segir í upplýsingum frá Brimborg, umboðsaðila Ford á Íslandi.

mbl.is