Frumsýna fyrsta rafbíl Mini

Rafbíllinn Mini Cooper SE verður frumsýndur hjá BL á morgun, …
Rafbíllinn Mini Cooper SE verður frumsýndur hjá BL á morgun, laugardag.

BL við Sævarhöfða kynnir á morgun, laugardag milli kl. 12 og 16, rafbílinn Mini Cooper SE sem er rafknúin útgáfa Mini Cooper S og fyrsti rafbíll framleiðandans.

Þessi nýi rafbíll er framdrifinn, þriggja dyra borgarbíll með 184 hestafla rafmótor sem skilar honum á rúmum sjö sekúndum úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Rafhlaðan er 33 kW sem skilar 270 Nm togi og er drægi bílsins um 233 km samkvæmt mælistaðlinum WLTP.

„MINI Cooper SE nýtur fjölmargra tæknilausna og reynslu frá móðurfyrirtækinu BMW. Í umsögnum bílablaðamanna er bíllinn jafnvel talinn enn skemmtilegri í akstri en spegilmyndin, Cooper S. Þyngdarpunkturinn er t.a.m. enn lægri en í S-útgáfunni vegna rafhlöðunnar sem staðsett er neðst í undirvagninum. Það hefur verið sagt um rafbíla að þeir séu skemmtilegri í akstri en bílar með hefðbundnum vélum og það á sannarlega við um þennan nýja rafdrifna borgarbíl því aflið (togið) skilar sér nánast samstundis til hjólanna og gerir MINI Cooper SE einstaklega snarpan og lipran í akstri,“ segir í tilkynningu.

Þrjú útbúnaðarstig S, M og L

Mini SE er fáanlegur í þremur útbúnaðarútfærslum; S, M og L og er grunnverðið frá 3.980 þúsundum króna. Grunnútgáfan S er vel búin staðalbúnaði á borð við regnskynjara, 6,5“ snertiskjá, fjarlægðarskynjara að aftan, rafdrifna og upphitaða hliðarspegla, díóðuljós að framan og aftan og einnig í stöðu- og aðkomuljósum (Follow me home) svo fátt eitt sé nefnt. Í dýrari gerðunum M og L er m.a. að finna búnað á borð við íslenskt leiðsögukerfi, stærri álfelgur, akstursaðstoðarkerfi, bakkmyndavél og sjálfvirkni sem leggur bílnum í stæði.

Allar gerðir bílsins eru búnar fjórum mismunandi akstursstillingum; Sport, Mid, Green og Green+ sem gera ökumanni kleift að stjórna nýtingu orku frá rafhlöðunni og annað hvort auka drægi bílsins með því að spara orku eða njóta aksturseiginleikanna til hins ítrasta með aukinni orkunotkun í sportstillingunni.

Allar nánari upplýsingar um nýjan rafdrifinn Mini Cooper SE má nálgast á vefsíðunni mini.is hjá BL.

mbl.is