Frumsýna glænýjan Peugeot 3008 tengiltvinnbíl

Tengiltvinnbíllinn Peugeot 3008 PHEV.
Tengiltvinnbíllinn Peugeot 3008 PHEV.

Brimborg frumsýnir glænýjan og sparneytin Peugeot 3008 tengiltvinnjeppa sem búinn er 300 hestafla vél með 8 gíra sjálfskiptingu og 5 ára ábyrgð. Peugeot 3008 hefur slegið í gegn á Íslandi og nú kemur hann fjórhjóladrifinn í tengiltvinnútgáfu með drægi á rafmagninu einu allt að 59 km, snögga rafhleðslu og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.

Frumsýningin fer fram laugardaginn 1. febrúar í höfuðstöðvum Brimborgar við Bíldshöfða í Reykjavík og á Tryggvagötu 5 á Akureyri, klukkan 12 til 16.

Peugeot 3008 PHEV er með 13,2 kWh rafhlöðu og drægii hennar skv. WLTP mælingu í 100% rafmagnsstillingu er 59 km í fjórhjóladrifsútgáfunni. Rafhlaðan er staðsett undir aftursætinu og hefur því ekki áhrif á farþega- eða skottrými. Aðgerðin „e-SAVE“ gerir ökumanni kleift að spara rafmagn til síðari nota t.d. ef þarf að aka á svæði sem eingöngu er ætlað fyrir rafmagnsbíla.

„Það er einfalt og fljótlegt að hlaða nýjan Peugeot 3008 PHEV. Hægt er að fullhlaða heima eða í vinnu á innan við 2 tímum með 7,4 kW hleðslustöð. Einfalt er að hafa yfirsýn með hleðslunni með MyPeugeot Appinu. Bensíneyðsla í blönduðum akstri er aðeins 1,6l L/100 km. og CO2 losun aðeins frá 33 gr per km skv. WLTP mælingu.

Kosturinn við tengiltvinntæknina er að geta ekið á rafmagni í öllum venjulegum akstri án þess að hafa áhyggjur af rafmagnsleysi því tengiltvinntæknin býður upp á einstaka drægi með blöndu af rafmagni og bensíni og 22 cm veghæð opnar marga möguleika,“ segir í tilkynningu.

Nýjasta bíltækni

Peugeot 3008 sportjeppinn er margverðlaunaður, ríkulega búinn og hefur fengið sérstakt lof fyrir einstaka hönnnun utan sem innan, þar sem nútímaleg i-Cockpit innrétting er í lykilhlutverki með nýjustu kynslóð af bíltækni. Birtast allar upplýsingar um virkni bílsins í sjónlínu ökumanns.

Sala tengiltvinnjeppa hefur farið vaxandi víða um heim og því verður takmarkað magn í boði á Íslandi. Brimborg hefur tryggt sér  ákveðinn fjölda bíla sem eru nú til sölu í nýjum vefsýningarsal á brimborg.is. Hefur forsalan farið feikivel af stað, að sögn Brimborgar

Í fyrstu verður Peugeot 3008 tengiltvinnjeppinn í boði í GT
útfærslu hlaðinn staðalbúnaði. Hann er knúinn áfram af annars vegar bensínvél og hins vegar tveimur rafmótorum sem skila samanlagt 300 hestöflum; miklu afli og einstökum aksturseiginleikum, að sögn bílaumboðsins.

Peugeot 3008 PHEV fjórhjóladrifinn kostar frá 6.130.000 kr.


 

Tengiltvinnbíllinn Peugeot 3008 PHEV.
Tengiltvinnbíllinn Peugeot 3008 PHEV.
Tengiltvinnbíllinn Peugeot 3008 PHEV.
Tengiltvinnbíllinn Peugeot 3008 PHEV.
Tengiltvinnbíllinn Peugeot 3008 PHEV.
Tengiltvinnbíllinn Peugeot 3008 PHEV.
Tengiltvinnbíllinn Peugeot 3008 PHEV.
Tengiltvinnbíllinn Peugeot 3008 PHEV.
mbl.is