Lúxusrútur sem ráða við erfiða færð

Frá sýningarbásnum í Brussel. Kaupendur víða um Evrópu hafa sýnt …
Frá sýningarbásnum í Brussel. Kaupendur víða um Evrópu hafa sýnt þessum lúxusrútum áhuga.

Íslenska fyrirtækið RAG hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir sérútbúnar Mercedes-Benz Sprinter smárútur. Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki hafa tekið þessar „Arctic Edition“-rútur í sína þjónustu og þá fjölgar í kaupendahópnum á meginlandi Evrópu enda þykja rúturnar frá RAG henta vel á stöðum eins og í fjallabyggðum Sviss og Ítalíu þar sem mikil snjókoma á það til að valda slæmri færð á vegum.

Rafn Arnar Guðjónsson er sölustjóri RAG, en fyrirtækið hefur í gegnum tíðina sérhæft sig í innflutningi á bifreiðum og vinnuvélum af ýmsum toga og er m.a. umboðsaðili þýska félagsins Fliegl, sem framleiðir landbúnaðartæki og vagna fyrir efnisflutninga. Árið 2014 komst Rafn í samband við vandaða unga menn sem reka bílabreytingaverkstæði í Póllandi og tókst með þeim samstarf um að breyta Sprinter-sendibílum í 21 manns smárútur.

„Útkoman er rúta sem er hæfilega stór, fjórhjóladrifin og með háu og lágu drifi. Með miklum tilkostnaði og fyrirhöfn hefur okkur síðan tekist að fá öll leyfi og úttektir hjá eftirlitsstofnunum í Póllandi svo að selja má Mercedes-Benz Arctic Edition rúturnar hvar sem er innan Evrópu,“ útskýrir Rafn, en auk þess að innrétta rúturnar í samræmi við ströngustu kröfur hefur pólska verkstæðið líka hækkað Sprinterana og sett undir þá 35 tommu dekk. „Þessar rútur hafa ekki síst verið notaðar í kynnisferðum yfir vetrarmánuðina og henta mjög vel í norðurljósaferðir og Gullna hringinn þegar snjór er á vegum. Þá hafa rúturnar okkar jafnframt komið í góðar þarfir í skólaakstri.“

Sjálfsagt að hlaða og tengjast

Áhugavert er að skoða hvernig farþegar hafa gert æ ríkari kröfur til þæginda og aðbúnaðar um borð í jafnt stórum sem smáum rútum. Rafn segir að RAG hafi verið með þeim fyrstu til að bjóða upp á sæti með innstungum fyrir USB-snúrur en það þyki nánast sjálfsagt í dag að geta hlaðið snjalltækin á leiðinni á milli staða. „Bæði vill fólk geta stungið símanum eða myndavélinni í samband, en eins þykir farþegum æskilegt að rútur bjóði upp á þráðlaust net svo hægt sé að kíkja á samfélagsmiðla, lesa fréttir og jafnvel horfa á sjónvarpið í símanum. Þá kemur vitaskuld ekkert annað til greina en að farþegarýmið sé hlýtt, þurrt og þægilegt og tvöfalt gler í öllum rúðum. Það að sitja í rútu með móðu á gluggum svo að ekkert sést út heyrir sögunni til.“

Við kaup á rútu segir Rafn að huga þurfi alveg sérstaklega að því að sætin séu þægileg og fótaplássið gott. „Evrópustaðallinn kveður á um að 70 cm séu á milli sæta, og stærð sætanna þarf að taka mið af stærð farþeganna. Þannig getur grannur gestur frá Asíu gert sér að góðu sæti sem væri of þröngt og smátt fyrir hávaxinn og gildvaxinn Ameríkana.“

Rútur sem er víða þörf

Greinilegt er að mikill metnaður er í RAG og var fyrirtækið með sýningarbás á Busworld rútu- og strætisvagnasýningunni miklu sem haldin var í Brussel seint í október. Að sögn Rafns var sýningin mikið ævintýri og gaman að sjá hversu vel það gekk að benda gestum á kosti Arctic Edition-rútanna. „Þeir sem komu á básinn hugsuðu margir með sér að svona ökutæki kæmi helst að notum á Íslandi, í Afríku eða jafnvel í hernum, en raunin er að víða í Evrópu er að finna ferðamannastaði þar sem þörf er á farartækjum einmitt af þessu tagi, handa mjög kröfuhörðum ferðalöngum. „Í fjallahéröðum Sviss, Austurríkis og Þýskalands hefur vantað annan valkost en að ferja fólk á milli staða í litlum jeppum.“

Lýsing, áklæði og ýmis skemmtileg smátriði einkenna RAG-rúturnar.
Lýsing, áklæði og ýmis skemmtileg smátriði einkenna RAG-rúturnar.
Nýútbúinn Arctic Edition lúxus-Sprinter við verkstæðið í Póllandi.
Nýútbúinn Arctic Edition lúxus-Sprinter við verkstæðið í Póllandi.
Á ferðalögum um landið er gott að hafa meira pláss …
Á ferðalögum um landið er gott að hafa meira pláss og þægileg sæti.
Fella má öftustu sætaröðina.
Fella má öftustu sætaröðina.
Rafn Arnar Guðjónsson segir ferðamenn gera kröfu um að geta …
Rafn Arnar Guðjónsson segir ferðamenn gera kröfu um að geta hlaðið snjalltækin og tengst þráðlausu neti á ferð sinni milli náttúruundra. mbl.is/Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: