Vetrardagar hjá Kia

Kia Sorento Arctic Edition er á 31
Kia Sorento Arctic Edition er á 31" dekkjum og með 22 sentímetra veghæð.
Vetrardagar Kia hefjast á morgun, laugardag, og munu halda áfram í febrúar mánuði. Boðið verður upp á ýmis tilboð af því tilefni, meðal annars sérstaka vetrarpakka með völdum Kia bílum.

Stjörnurnar í vetrarherferð Kia eru sportjepparnir vinsælu Sorento og Sportage. Kia Sorento verður í boði með Arctic Edition breytingu en í þeirri útfærslu er bíllinn upphækkaður, með 24 cm veghæð og hefur tveggja tonna dráttargetu.
Með Kia Sportage mun fylgja veglegur vetrarpakki að verðmæti 400.000. Einnig verða vetrarpakkar í boði fyrir Optima Sportswagon PHEV sem inniheldur upphækkun á bílnum, dráttarbeisli og skíðafestingar.
mbl.is