Verður flaggskip rafbílaflota Mercedes

Framleiðslugerðin af EQS sést hér í felulitunum við hliðina á …
Framleiðslugerðin af EQS sést hér í felulitunum við hliðina á hugmyndabílnum Vision EQS.

Mercedes-Benz EQS verður flaggskip rafbílaflota þýska lúxusbílaframleiðandans þegar hann kemur á markað árið 2022. Bíllinn var frumsýndur í hugmyndaútgáfu á bílasýningunni í Frankfurt í fyrra undir nafninu Vision EQS.

„Þessi glæsilegi lúxusrafbíll frá Mercedes-Benz verður fyrsti EQ bíll framleiðandans sem byggir á EVA undirvagninum sem er stækkanlegur og liggur flatur undir bílnum líkt og hjólabretti. EVA undirvagninn gefur því meiri möguleika á auknu innanrými en áður hefur sést að sögn Mercedes-Benz. EQS verður búinn miklum lúxus og tækni fyrir ökumann og farþega og á að vera leiðandi rafbíll í lúxusflokki,“ segir í tilkynningu.

Mercedes hefur ekki gefið upp nánari upplýsingar um EQS en Vision EQS hugmyndabíllinn var  með um 700 km drægi samkvæmt og búinn tveimur öflugum rafmótorum sem skila 469 hestöflum. Bíllinn er fjórhjóladrifinn og kemst úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 4,5 sekúndum. Hámarkstog er 700 Nm. Hægt er að hlaða bílinn allt að 80% hleðslu á innan við 20 mínútum. AMG útgáfa af EQS kemur á markað fljótlega í kjölfarið en sá verður með tveimur rafmótorum sem skila alls 600 hestöflum.

Næstu hreinu rafbílarnir sem koma á markað frá Mercedees-Benz eru EQA, eVito og EQV en Bílaumboðið Askja verður meðal fyrstu umboða í Evrópu sem fá þá bíla til sölu.

mbl.is