Nýr Mercedes-Benz EQV í sölu

EQV er rafmögnuð útgáfa af V-Class og hreinn rafbíll.
EQV er rafmögnuð útgáfa af V-Class og hreinn rafbíll.

Nýr Mercedes-Benz EQV rafbíll er kominn í sölu hjá Bílaumboðinu Öskju en hann verður frumsýndur síðar í sumar. Í tilkynningu frá Öskju segir að nú þegar hafi verið mikil eftirspurn eftir EQV sem er stór lúxusbíll og rúmar allt að 8 farþega.

EQV er rafmögnuð útgáfa af V-Class og er hreinn rafbíll með engan útblástur. Hann er með 90 kílóvattstunda ( kWh) litíumjóna rafhlöðu undir gólfinu sem skilar bílnum 204 hestöflum og um 366 kílómetra drægi samkvæmt af WLTP staðli. Hámarkstog bílsins er 362 Nm. Hægt verður að hlaða bílinn upp í allt að 80% rafhlöðu á innan við 45 mínútum.

EQV er tæknivæddur í innanrýminu sem er búið þægindum og lúxus. Þar á meðal  MBUX margmiðlunarkerfi og er með stóru, stafrænu mælaborði. Þá er hann einnig búinn allra nýjustu aksturs- og öryggiskerfum frá Mercedes-Benz. Hægt er að breyta sætauppstillingum að vild en bíllinn er bæði ætlaður til einkanota og fyrirtækjareksturs.

EQV er annar bíllinn í EQ fólksbílalínu Mercedes-Benz en sportjeppinn EQC var frumsýndur á síðasta ári. EVito Tourer bætist svo við EQ línuna í nóvember á þessu ári, en eVito Tourer er einnig 100% rafbíll og hefur sæti fyrir 7-8 farþega.

mbl.is