Meirihluti nýskráðra Honda bíla hybrid

Honda CRV hefur víða slegið í gegn.
Honda CRV hefur víða slegið í gegn.

Meirihluti nýskráðra Honda bíla á árinu eru hybrid, það er knúnir fyrir bæði rafmagni og bensíni; öðru nafni tvinnbílar.

Honda CRV er söluhæsta gerðin það sem af er ári, en CRV hefur verið einn mest seldi jeppi heims mörg undanfarin ár. Var hann meðal annars valinn jeppi ársins í Bandaríkjunum í fyrra en ný gerð Honda CRV hefur víða slegið í gegn, að því er fram kemur í tilkynningu.

Honda CRV var meðal annars jeppi ársins hjá bílatímaritinu WhatCar? sem og valinn græni jeppi ársins hjá Green Car Journal. Nú hafa bæst við tveir nýir tvinnbílar hjá Honda, annars vegar Honda Jazz og hins vegar Honda Jazz Crosstar sem er snaggaralegur smájepplingur frá japanska bílaframleiðandanum.

Á næstunni verður svo kynntur til sögunnar nýr Honda e sem er hreinn rafbíll sem kemst allt að 220 kílómetra á fullhlaðinni rafhlöðu. Um er að ræða nettan og nútímalegan borgarbíl, tæknivæddan og snjallan. „Honda e hefur vakið athygli fyrir flotta og framúrstefnulega hönnun en hann hefur meðal annars fengið Red Dot hönnunarverðlaunin sem eru með þeim eftirsóttustu í bílaheiminum, segir í tilkynningunni.“

Honda er sjöundi stærsti bílaframleiðandi heims og framleiðir yfir 5 milljón bíla á ári. Fyrirtækið er annar stærsti bílaframleiðandi Japans. Honda hefur markað sér afgerandi stefnu í rafvæðingu og á næstu 36 mánuðum mun Honda kynna sex nýja umhverfisvæna bíla á markað í Evrópu. Þar af verða tveir rafbílar og fjórir tvinnbílar.

Bílaumboðið Askja tók við Honda umboðinu í lok árs 2019.

mbl.is