Glænýr langdrægur Peugeot rafbíll sýndur

Glænýi langdrægi e-Peugeot rafbíllinn verður frumsýndur hjá Brimborg laugardaginn kemur.
Glænýi langdrægi e-Peugeot rafbíllinn verður frumsýndur hjá Brimborg laugardaginn kemur.

Brimborg frumsýnir glænýjan, langdrægan Peugeot e-2008, 100% hreinan rafbíl með jeppalagi, góða veghæð og háa sætisstöðu. Hann er sjálfskiptur með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél, varmadælu sem eykur orkunýtingu og drægi.

Bíllinn er með 50 kWh rafhlöðu sem er snögg í hleðslu og skilar 320 km drægi. Loks er Peugeout e-2008 búinn forhitara sem tryggir að bíllinn er alltaf heitur þegar lagt er  af stað. Peugeot e-2008  er með fimm ára alhliða ábyrgð og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Brimborg, umboðsaðila PSA hér á landi.

„Það er einfalt og fljótlegt að hlaða nýjan Peugeot e-2008  rafbíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða á 7,5 klst í öflugri heimahleðslustöð og aðeins tekur 30 mínútur að hlaða tóma drifrafhlöðuna í 80% hleðslu í 100 kW hraðhleðslustöð,“ segir í tilkynningunni.

Einfalt mun vera að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyPeugeot appinu ásamt því að stilla forhitarann. Einfalt er að vera með yfirsýn á bílnum í snjallsímanum með appinu. Hægt er að skoða upplýsingar um bílinn þ.á.m. stöðu á drægi, hleðslustöðu, þjónustuyfirlit og panta tíma á þjónustuverkstæði.

Hönnun nýja Peugeot e-2008 SUV er alveg ný frá grunni. Hann er með mikla veghæð og háa sætisstöðu. Innréttingin er nýjasta kynslóð af Peugeot 3D i-Cockpit sem er fullkominn stafrænn heimur þar sem mælaborð og stjórntæki eru í sjónlínu ökumanns og bæta þannig enn akstursgæði.

Hinn glænýi  Peugeot e-2008 SUV er með nýjustu aksturs- og öryggistækni sem aðstoða ökumanninn og tryggir örugga ökuferð. Veglínuskynjun, blindpunktsaðvörun, vegskiltalesari, aðlögunarhæfur hraðastillir, sjálfvirk neyðarhemlun og ný gerð bakkmyndavélar eru dæmi um öryggisbúnað í Peugeot e-2008 SUV.

„Forsalan á Peugeot e-2008 hófst í vor og hefur gengið gríðarlega vel. Nú þegar hafa fjölmargir kaupendur forpantað nýjan e-2008 og valið sinn uppáhaldslit og útfærslu. Í Vefsýningarsal  er að finna alla Peugeot e-2008 lausa bíla á lager og í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar“.

Nýr Peugeot e-2008 verður frumsýndur í Brimborg Reykjavík og Akureyri næstkomandi laugardag, 8. ágúst frá 12-16. Sýningar- og reynsluakstursbílar verða á staðnum og eins verður í boði ráðgjöf varðandi hleðslu rafbíla og uppsetningu hleðslustöðva.

Peugeot e-2008 SUV kostar frá 4.650.000 kr. og er fáanlegur í fjórum búnaðarfærslum; Active, Allure, GT-line og GT.

mbl.is