Mikil aukning í sölu Peugeot rafbíla

Rafbílafjölskylda Peugeot.
Rafbílafjölskylda Peugeot.

Brimborg hefur það sem af er ári afhent og forselt 92 Peugeot rafbíla eða tengiltvinn rafbíla en á sama tíma í fyrra var enginn rafdrifinn bíll í boði frá Peugeot.

Má því segja að í ár hafi orðið kúvending í framboði og sölu Peugeot rafbíla. Í byrjun mánaðarins frumsýndi Brimborg 100% hreinan rafbíl, Peugeot e-2008. Fyrir voru í boði Peugeot 3008 PHEV tengiltvinn rafbíll og Peugeot e-208 100% hreinn rafbíll ásamt Peugeot 508 PHEV tengiltvinn rafbíl.

Forpöntun á nýjum bílum vinsæl

Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. „Nú eru 85,7% þeirra Peugeot rafbíla sem eru að koma til landsins á næstum vikum seldir og 61,5% þegar horft er til næstu 12 vikna. Vegna aukinnar eftirspurnar vinnur Brimborg að því að útvega fleiri framleiðslupláss,“ segir í tilkynningu frá Brimborg.

„Stefna Peugeot bílaframleiðandans er að rafvæða allt sitt bílaúrval fyrir árið 2025. Vegferðin hófst með Peugeot 3008 PHEV, fjórhjóladrifnum tengiltvinn rafbíl, næst kom Peugeot e-208 100% hreinn rafbíll sem var kosinn Bíll ársins í Evrópu 2020. Síðan bættist Peugeot 508 PHEV tengiltvinn rafbíllinn við og loks er það nýjasta útspilið, Peugeot e-2008, 100% hreinn rafbíll með jeppalagi, góða veghæð og háa sætisstöðu,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Peugeot e-2008 er nýjasti 100% hreini rafbíll Peugeot

Brimborg segir að e-2008 rafbíllinn frá Peugeot henti einstaklega vel við íslenskar aðstæður með jeppalagi, góða veghæð og háa sætisstöðu. Hann er sjálfskiptur með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél, varmadælu sem eykur orkunýtingu og drægi og 50 kílóvattstunda rafhlöðu sem  skilar 320 km drægi. Að auki er bíllinn búinn fjarstýrðum forhitara sem tryggir að bíllinn er alltaf heitur þegar lagt er af stað. Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Peugeot e-2008 rafbílinn heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða á 7,5 klst í öflugri heimahleðslustöð og aðeins tekur 30 mínútur að hlaða tóma rafhlöðu í 80% drægi í 100 kW hraðhleðslustöð. Peugeot bílar eru með fimm ára alhliða ábyrgð og rafbílarnir eru að auki með 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.

mbl.is