457 hesta tengiltvinn Ford-jeppi í hús

Nýr Ford Explorer tengiltvinnbíllinn verður senn frumsýndur í Brimborg.
Nýr Ford Explorer tengiltvinnbíllinn verður senn frumsýndur í Brimborg.

Glænýr rafmagnaður tengiltvinn Ford Explorer PHEV er kominn til Brimborgar og verður frumsýndur á næstunni.

Hann er búinn öflugri tvinnaflrás sem í er að finna 3,0 lítra EcoBoost V6 bensínvél auk rafmótors, 10 gíra sjálfskiptingu og 13,1 kílóvattstunda rafhlöðu. Samanlagt skilar hún 457 hestöflum og 840 Nm togi.

Explorer er sjö sæta lúxusjeppi sem hentar einstaklega vel í lengri ferðir á fjöll, veiði, skíði eða í önnur ævintýri enda með góða 20 sentímetra  veghæð og dráttargetu upp á 2.500 kg.

„Jafnfram er hinn nýi Explorer einstaklega hentugur í borgarakstur á hreinu rafmagni með drægi upp á 42 km og auðvelt og fljótlegt að hlaða bæði heima og í vinnu,“ segir í tilkynningu.

Ford Explorer er endurhannaður frá grunni.  Þegar aftasta sætaröðin er felld niður þá mælist farangursrýmið 2.274 lítrar. Innra rýmið býður upp á 123 lítra geymslupláss um allan bílinn sem gefur öllum farþegum gott pláss fyrir sig og sína hluti. Þar með eru taldir 12 glasahaldarar.

Ríkulegur búnaður

Nýr Ford Explorer PHEV kemur í tveimur útgáfum, Platinum og ST-Line. Báðar eru þær hlaðnar ríkulegum staðalbúnaði.

„Sérhvert smáatriði er úthugsað til að tryggja lúxustilfinningu, hvort sem þú ert að aka um í borginni eða í meira krefjandi landslagi. Hann er með 10,1 tommu snertiskjá, nýjustu útgáfuna af SYNC 3, með FordPass Connect tengingu, B & O hljóðkerfi með 14 hátölurum og nudd í framsætum þannig þér líður alltaf vel við aksturinn sem verður því einstaklega skemmtilegur. Að auki er 360°myndavél með tvískiptum skjá, fjarlægðarstillanlegur hraðastillir, BLIS með aðvörun fyrir hliðarumferð, umferðaskiltalesari og veglínuskynjari, árekstrarvari að framan sem skynjar einnig gangandi og hjólandi vegfarendur til að tryggja öryggi,“ segir Brimborg, sem bætir því við að þessi nýi bíll kosti  11.990.000 krónur.

Nýr Ford Explorer tengiltvinnbíllinn er fljóthlaðinn. Hann verður senn frumsýndur …
Nýr Ford Explorer tengiltvinnbíllinn er fljóthlaðinn. Hann verður senn frumsýndur í Brimborg.
mbl.is