Tengiltvinnbíllinn RAV4 fékk góðar viðtökur þegar hann var frumsýndur hjá Toyota um nýliðna helgi.
Þessi útgáfa af RAV4 sameinar kosti rafbíls og tvinnbíls (hybrid) og getur ekið allt að 75 km á rafmagninu eingöngu. Sameinaðir kraftar rafmagns og bensínvélar skila aftur á móti 306 hestöflum úr aflrásinni.
„Greinilegt var á viðtökum sýningargesta að þessi viðbót við nýjustu kynslóð RAV4 er kærkominn en RAV4 er meðal mest seldu bíla ársins og var söluhæstur hér á landi 2019. Er það í takt við viðtökur á heimsvísu en RAV4 er mest seldi sportjeppi heims og seldust 900.000 bílar á síðasta ári,“ segir í tilkynningu.