Afhentu fyrsta Honda-e rafbílinn

Hlynur Björn Pálmason, sölustjóri Honda umboðsins, afhenti Þorsteini Guðjónssyni fyrsta …
Hlynur Björn Pálmason, sölustjóri Honda umboðsins, afhenti Þorsteini Guðjónssyni fyrsta Honda e bílinn.

Fyrstu eintök rafbílsins Honda-e eru komin til landsins og afhendingar hafnar til kaupenda sem beðið hafa komu bílsins með mikilli eftirvæntingu, segir í tilkynningu frá Öskju.

Honda-e er fyrsti bíll Honda sem er eingöngu knúinn rafmagni og hefur bíllinn fengið mikið lof. Fyrsti bíllinn var afhentur á dögunum en eigandi hans er Þorsteinn Guðjónsson.

„Hann hefur beðið eftir bílnum af mikilli þolinmæði og tilhlökkun en að hans eigin sögn var hann farinn að telja niður klukkutímana fram að afhendingu bílsins,“ segir Hlynur Björn Pálmason, sölustjóri Honda umboðsins hjá Öskju.

„Honda-e hefur fengið mjög mikla athygli hjá okkur fyrstu dagana hér í sýningarsalnum okkar á Krókhálsi. Bíllinn hentar mjög vel fyrir þarfir okkar í daglegu amstri borgarlífsins þar sem hann er einstaklega lipur, búinn allt að 8 myndavélum og getur jafnvel lagt sjálfur í bílastæði. Staðalbúnaður bílsins er einstaklega ríkulegur og er hann búinn varmadælu sem kemur sér einstaklega vel á köldum morgnum vetrarins sem nú fer í hönd,“ segir Hlynur í tilkynningu.

Hægt er að skoða og reynsluaka Honda-e rafbílnum hjá Honda umboðinu sem staðsett er í glæsilegum húsakynnum á Krókhálsi 13 þar sem sölumenn veita allar upplýsingar um bílinn.

mbl.is