Nýir Volvo lögreglubílar fyrir 200 milljónir

Volvo V90
Volvo V90

Ríkiskaup hefur, í kjölfar útboðs fyrir hönd lögregluembættanna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum tekið lægsta tilboði Brimborgar um kaup á 17 nýjum Volvo lögreglubifreiðum að verðmæti yfir 200 milljónir króna.

Um er að ræða Volvo V90 Cross Country AWD sem eru búnir sérstyrktum undirvagni með sérstaklega öflugu bremsukerfi, kraftmikilli en sparneytinni 235 hestafla B5 dísil vél, fjórhjóladrifi og góðri veghæð. Lögregluembættin á Íslandi hafa í áratugi notast við Volvo bíla í störfum.

V90 Cross Country bílarnir fyrir lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum verða afhentir í þremur afhendingum, sex bílar á þessu ári, sjö árið 2021 og fjórir í byrjun árs 2022.

Auk þessarar afhendingar fékk lögreglan á Vestfjörðum nýlega afhentan glæsilegan Volvo XC90 AWD sem verður staðsettur á Patreksfirði og mun þjóna víðfeðmu umdæmi lögreglunnar á svæðinu.

mbl.is