Nýr EQA rafbíll frumsýndur

Mercedes-Benz EQA.
Mercedes-Benz EQA.
Nýr Mercedes-Benz EQA rafbíll sem beðið hefur verið eftir var heimsfrumsýndur í dag en bíllinn var frumsýndur á öllum mörkuðum í gegnum stafræna miðla.
„Mercedes-Benz sýndi hugmyndaútgáfu bílsins í Frankfurt árið 2017 og mikil eftirvænting hefur ríkt eftir komu bílsins enda er hann í stærðarflokki sem nýtur mikilla vinsælda um allan heim,“ segir í tilkynningu.

Nýr EQA er hreinn rafbíll með allt að 426 km drægi samkævmt WLTP staðli og losar engar lofttegudir. Bíllinn er búinn 66,5 kW rafhlöðum sem skila honum 190 hestöflum og hröðunin úr kyrrstöðu í hundraðið er 8,05 sekúndur ef miðað er við EQA 250.
Hámarkstog EQA 250 er 375 Nm. Von er á allt að 285 hestafla útfærslu sem er aðeins 5,5 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. EQA kemur fyrst um sinn einungis framdrifinn en verður í boði fjórhjóladrifinn nú strax í sumar.

EQA er byggður á hinum nýja MFA2 undirvagni frá Mercedes-Benz sem verður einnig notaður í EQB og fleiri rafbílum sem EQ deild Mercedes-Benz hannar.
„Hönnun EQA er flott og framsækin og í anda EQ stefnu þýska lúxusbílaframleiðandans. EQA verður búinn ýmsum búnaði og hönnun sem er í EQC, fyrsta rafsportjeppa Mercedes-Benz. Má þar nefna LED línu á fram- og afturljósum bílsins og sportlegt grillið að framan. Í innanrýminu er stafrænt stjórnrýmið spennandi og nútímalegt,“ segir í tilkynningunni.

EQA er búinn MBUX margmiðlunarkerfinu og háskerpuskjá í breiðtjaldsmælaborði bílsins. Þá er hann í boði með nýju og háþróuðu Electric Intelligence leiðsögukerfi. EQA er einnig með snjallri hleðslutækni sem býður upp á ýmsa möguleika varðandi hleðslu. Hægt er að hlaða bílinn allt að 80% á 30 mínútum í hraðhleðslu en það tekur um 5 klukkustundir og 45 mínútur að fullhlaða í venjulegri heimahleðslustöð. Bíllinn er auk þess búinn öllum helstu öryggis- og akstursaðstoðarkerfum frá Mercedes-Benz.

Von er á EQA hingað til lands í lok febrúar samkvæmt upplýsingum frá Öskju, umboðsaðila Mercedes-Benz á Íslandi og er sala þegar hafin á bílnum. Verð á EQA er frá 6.790.000 krónum.
mbl.is