Kia eykur enn markaðshlutdeild sína í Evrópu

Kia Sorento.
Kia Sorento.
Kia hefur náð mestu markaðshlutdeild í sögu sinni í Evrópu. Alls seldust 416.715 Kia bílar í Evrópu árið 2020 og jókst hlutdeildin úr 3,2 í 3,5% í álfunni.
Hlutdeild rafmagnsbíla Kia jókst um 197% og tengiltvinnbílarbíla um +112%. Sala á rafbílum og tengiltvinnbílum er nú um fjórðungur af sölu Kiabíla í Evrópu. Þá fór sala á rafbílum Kia í fyrsta sinn yfir 100 þúsund eintök á einu ári í Evrópu.

„Kia hefur náð mjög góðum árangri í sölu í Evrópu undanfarin ár og markðashlutdeildin hefur hækkað ár frá ári. Þetta sýnir að Kia bílar eru orðnir með vinsælustu bílum sem í boði eru á evrópska markaðnum. Það kemur ekki á óvart því Kia hefur lagt afar mikið upp úr áreiðanleika og öryggi bíla sinna sem og nýjustu tækni og góðum aksturseignleikum þeirra. Kia var m.a. fyrsti bílaframleiðandi heims til að bjóða 7 ára ábyrgð á nýjum bílum sínum sem sýnir hversu mikið traust bílaframleiðandinn ber til bíla sinna. Þessi aukna markaðshlutdeild í Evrópu er sérstaklega ánægjuleg og eftirtektarverð í ljósi þess að árið 2020 var erfitt í bílasölu um allan heim vegna Covid-19,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju, í tilkynningu.

„,Hér á landi var Kia með næst flestar nýskráningar fólksbíla 2020 og það er enn eitt árið sem Kia er í topp 2 yfir mestu söluna og var hlutdeildin 10%. Við hjá Bílaumboðinu Öskju erum afar stolt og ánægð af þeim árangri. Það eru spennandi tímar framundan hjá Kia og framboðið eykst enn frekar með tilkomu nýrra rafbíla og tengiltvinnbíla framleiðandans," segir Þorgeir ennfremur.
mbl.is