Kia e-Niro var kosinn besti rafbíllinn

Kia e-Niro
Kia e-Niro

Kia e-Niro var kosinn besti rafbíllinn í ár­legri áreiðan­leika­könn­un banda­ríska grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins J.D. Power.

Um 10 þúsund eigendur rafbíla voru spurðir út í ýmislegt sem viðkemur bílum þeirra,  m.a. drægi, kostnað og akstursánægju. Kia e-Niro var með hæstu einkunn allra bíla í könnuninni sem þykir ein virt­asta áreiðan­leika­könn­un­in í bíla­geir­an­um. Kia Motors var einnig í efsta sæti í áreiðanleikakönnun J.D. Power yfir bílasmiði í magnsölu.

Kia e-Niro er hreinn rafbíll með engan útblástur. Bíllinn er með 64 kWh litíumjóna rafhlöðu sem skilar drægi upp á alls 455 km í blönduðum akstri og allt að 615 km í borgarakstri samkvæmt mælingum WLTP. Rafmótorinn skilar alls 204 hestöflum og 395 Nm í togi. Bíllinn er aðeins 7,8 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. Rafhlaðan er undir farangursrýminu sem myndar lágan þyngdarpunkt og tryggir hámarks stöðugleika og akstursánægju.

„Þetta er enn ein mikilvæg viðurkenningin fyrir Kia e-Niro sem sýnir enn frekar hversu sterka stöðu Kia hefur náð á rafbílamarkaðnum. Það er ekki auðvelt að vera leiðandi á markaði í rafbílaflokknum þar sem gríðarleg samkeppni ríkir en okkur tókst það samt. Með e-Niro erum við komnir fram með gæðabíl sem hefur engan útblástur. Þetta er góður, skemmtilegur og praktískur bíll sem er gaman að keyra," segir Jason Jeong, forseti Kia Europe í tilkynningu.

Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Bílaumboðinu Öskju, segir að Kia hafi staðið sig mjög vel í þróun rafbíla og ætli sér að vera leiðandi þar áfram í nánustu framtíð. Sjö nýir bílar bætast í vörulínu Kia á næstunni og á árinu 2025 verður hægt að velja úr 11 nýjum rafbílum í ýmsum stærðarflokkum. Kia gerir ráð fyrir að 25% Kia bíla verðir rafdrifnir árið 2029 – en hér á landi verður hlutfallið mun hærra og gerist hraðar vegna eftirspurnar markaðarins. „Þetta eru metnaðarfullar áætlanir hjá Kia og þeim ber sannarlega að fagna,“ segir Þorgeir.

mbl.is