Nýr Mercedes-Benz EQA rafbíll kominn

Nýi rafbíllinn Mercedes EQA.
Nýi rafbíllinn Mercedes EQA.

Nýr EQA er kominn til landsins og er til sýnis og reynsluaksturs í sýningarsal Mercedes-Benz, hjá Öskju á Krókhálsi 11.

Í tilkynningu frá Öskju, umboðsaðila Mercedes hér á landi, segir að mikil eftirvænting hafi ríkt eftir komu þessa netta, rafdrifna sportjeppa sem er þriðji rafbíllinn í EQ línu Mercedes-Benz.

Nýr EQA er hreinn rafbíll með allt að 426 km drægi samkvæmt WLTP staðli og engan útblástur. Bíllinn er búinn öflugum 66,5 kílóvatta rafhlöðum og útbúinn 190 hestafla rafmótor sem skilar honum úr kyrrstöðu í hundraðið á 7,9 sekúndum ef miðað er við EQA 250. Hámarkstog EQA 250 er 375 Nm.

Von er á EQA með fjórhjóladrifi strax í sumar en sala á þeim bíl er einnig hafin hjá Öskju. Sá bíll verður í boði með allt að 285 hestafla útfærslu sem er aðeins 5,5 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið.

EQA er byggður á hinum nýja MFA2 undirvagni frá Mercedes-Benz sem verður einnig notaður í EQB en sá bíll verður 7 manna rafdrifinn fjölskyldujepplingur – sá fyrsti frá Mercedes-Benz.

„Hönnun EQA er flott og framsækin og í anda EQ stefnu þýska lúxusbílaframleiðandans og á hann markt að sæja í EQC, fyrsta rafsportjeppa Mercedes-Benz. Má þar nefna LED línu á fram- og afturljósum bílsins og sportlegt grillið að framan. EQA verður í boði í þremur útfærslum; Pure, Progregressive og Power en grunnútfærsla bílsins er þegar mjög vel útbúinn. Til dæmis má nefna 2x 10,25” stafrænt stjórnrými með MBUX margmiðlunarkerfi, bakkmyndavél, blindpunktsaðvörun, íslenskt leiðsögukerfi, Apple CarPlay, lykillaust aðgengi o.fl. Bíllinn er auk þess búinn öllum helstu öryggis- og akstursaðstoðarkerfum frá Mercedes-Benz,“ segir í tilkynningunni.

EQA er einnig með snjallri hleðslutækni sem býður upp á ýmsa möguleika varðandi hleðslu. EQA er með 100 kílóvatta jafnspennu hraðhleðslugetu og 11 kílóvatta riðstraums hleðslugetu. Því er hægt er að hlaða bílinn allt að 80% á 30 mínútum í hraðhleðslu en það tekur um 5 klukkustundir og 45 mínútur að fullhlaða í venjulegri heimahleðslustöð og u.þ.b. 4 klst frá 10-80%.

Þess má að lokum geta, að nýir EQS og EQB verða heimsfrumsýndir 15. og 18. apríl næstkomandi.

mbl.is