Samstarf um þjónustu vöru- og hópferðabíla

Mercedes Benz Actros flutningabíll.
Mercedes Benz Actros flutningabíll.

Bílaumboðið Askja og Sleggjan hafa gengið til samstarfs um þjónustu við vöru- og hópferðabíla frá Mercedes-Benz, Setra og Unimog.

Sleggjan sem er alhliða þjónustuverkstæði fyrir vörubifreiðar og aftanívagna mun frá 1 maí taka yfir þjónustu, viðgerðir og viðhald á Mercedes-Benz vöru- og hópferðabílum og á sama tíma taka við atvinnubílaverkstæði Öskju sem mun því alfarið færast úr húsnæði Öskju til Sleggjunnar.

Starfsemi Sleggjunnar verður áfram í nýrri aðstöðu félagsins í Desjamýri í Mosfellsbæ og í Klettagörðum 4 í Reykjavík.  Starfsmenn félagsins verða við þessa breytingu hátt í 30 talsins. 

Askja sem er umboðsaðili fyrir Mercedes-Benz, Kia og Honda mun áfram reka verkstæði sín fyrir fólks- og sendibíla á Krókhálsi, ásamt söludeildum bifreiða og varahluta.

„Sleggjan var stofnuð árið 1990 og byggir því á 30 ára grunni. Við fögnum mjög þessu samstarfi við Öskju um þjónustu við Mercedes-Benz vöru- og hópbifreiðar. Mercedes-Benz er meðal bestu framleiðenda heims og jákvæð og spennandi áskorun að taka við allri þjónustu sem snýr að þessum bílum,“ segir Guðmundur Björnsson, framkvæmdastjóri og eigandi Sleggjunnar í tilkynningu.

„Jafnframt fáum við til Sleggjunnar vel þjálfaðan mannskap og allan þann tækjabúnað sem Askja hefur byggt upp í kringum þessa þjónustu. Sleggjan mun áfram sinna alhliða viðhaldi við vörubíla og vagna af öllum tegundum eins og félagið hefur gert undanfarna áratugi. Starfsstöð okkar í Mosfellsbæ verður með þann fókus áfram en mun einnig taka við Mercedes-Benz, á meðan starfsstöðvar okkar í Klettagörðum munu einbeita sér að Mercedes-Benz bifreiðum en á sama tíma sinna þar alhliða viðgerðum sem Sleggjan hefur sinnt. Þannig munu viðskiptavinir Mercedes-Benz og Sleggjunnar nú hafa aukinn aðgang að fjölbreyttri þjónustu okkar t.d. í tengslum við aftanívagna og eldri bíla. Við erum full eftirvæntingar og mjög spennt að fá um leið Öskju í okkar eigendahóp,“ bætir Guðmundur við.

„Við hjá Öskju fögnum því að koma að starfsemi Sleggjunnar. Félagið hefur verið vel rekið fjölskyldufyrirtæki og hefur gott orðspor. Með okkar innkomu í félagið verður til enn öflugra þjónustufyrirtæki sem mun taka næstu skref í að þjónusta og auka enn fjölbreytni og aðgengi eigenda Mercedes-Benz, Setra og Unimog, vöru- og hópferðabíla að góðri þjónustu,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju.

„Undanfarin ár hefur Mercedes-Benz verið annar mest seldi vörubíllinn á Íslandi og í gegnum tíðina hafa Mercedes-Benz og Setra hópferðabílar verið langvinsælustu gerðirnar í hópferðaakstri með ferðamenn og innlenda hópa hér um landið. Það er því gríðarlega mikilvægt að til staðar sé gott þjónustukerfi sem sinnir þessum kröfuharða hópi atvinnumanna og það mun Sleggjan nú gera. Með samstarfinu bætum við þjónustuna enn frekar og verður viðskiptavinum sinnt af sérhæfðum starfsmönnum á einu af stærstu og best búnu verkstæðum landsins á tveimum starfsstöðvum í höfuðborginni sem þýðir enn meiri sveigjanleiki og hraði fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Jón Trausti ennfremur.

mbl.is