Hátæknivæddur lúxusrafbíll

Mercedes-Benz EQS er rafdrifið flaggskip í fólksbílaflota Mercedes-Benz.
Mercedes-Benz EQS er rafdrifið flaggskip í fólksbílaflota Mercedes-Benz.

Mercedes-EQ frumsýndi lúxusbílinn EQS í stafrænni heimsfrumsýningu í dag. Nýr EQS er hreinn rafbíll og einn tæknivæddasti bíll heims, að því er segir í tilkynningu..

Mercedes-Benz EQS er rafdrifið flaggskip í fólksbílaflota Mercedes-Benz. EQS markar upphaf nýrra tíma í rafmögnuðum lúxus. EQS er fyrsta módelið sem byggir á nýjum arkitektúr fyrir rafknúna lúxusbíla sem kallast EVA.

„EQS veitir ökumanni og farþegum einstaka upplifun með samvinnu tækni, hönnunar, virkni og tenginga. Með framsýni á þessum sviðum mun EQS koma til með að auðvelda daglegt líf ökumanns og farþega með stuðningi gervigreindar,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

EQS verður bæði með framhjóla- og aldrifi. Tvær tegundir rafhlaða verða í boði, 108 kWh og 90 kWh, og talsverður fjöldi uppstillinga á drifrásum. Stærri rafhlaðan skilar yfir 700km drægi samkvæmt WLTP staðli og í ákveðinni útfærslu má ná allt að 770 km. Minni rafhlaðan mun skila 640 km. Öflugri gerðin verður 523 hestafla með hámarkstog alls 855 Nm. Minni rafhlaðan skilar 333 hestöflum og 568 Nm í hámarkstogi. Framdrifsútfærsla á EQS með stærri rafhlöðunni er 6,3 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið og í aldrifs útfærslunni aðeins 4,3 sekúndur.

Mercedes-Benz EQS er með 22 kWh, þriggja fasa hleðslugetu sem hleður bílinn frá 10-80% á innan við 4 klukkustundum. Hraðhleðslugeta bílsins verður 200 kW sem þýðir að hægt verður að ná 300 km drægi á aðeins 15 mínútum með stærri rafhlöðunni.

Ytra byrði EQS er hannað sem ein lína sem veldur því að bíllinn er einstaklega straumlínulagaður en hann hefur loftmótstöðugildið 0,20 Cd sem er það minnsta í heimi meðal fjöldaframleiddra bíla.

„Innanrýmið verður hlaðið lúxus og munaði auk mikillar tækni enda er bíllinn einn tæknivæddasti bíll sem framleiddur hefur verið. Nýja Hyperscreen mælaborðið verður í boði í EQS en það er tækni án hliðstæðu í fólksbíl en þar er um að ræða 141cm háserkpuskjá sem teygir anga sýna yfir allt mælaborðið. EQS er með nýjustu útgáfuna af MBUX margmiðlunarkerfinu sem  sér til þess að engum leiðist um borð í bílnum og veitir aðgang að allri afþreyingu og upplýsingum sem völ er á. Burmeister hljóðkerfi með 15 hátölurum veitir einstakan hljóm í innanrými bílsins.“

EQS byggir á EVA undirvagninum sem Mercedes-Benz hyggst nota í mörgum öðrum tegundum rafbíla sinna á næstunni m.a. EQE sem er væntanlegur fljótlega. EQS er fyrsti EQ bíll þýska lúxusbílaframleiðandans sem byggir á þessum nýjum EVA undirvagni sem er stækkanlegur og liggur flatur undir bílnum líkt og hjólabretti. EQS mun einnig koma í AMG útfærslu á næstunni en sá bíll verður rúmlega 600 hestöfl og fer úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 3,5 sekúndum.

Þægindi í fyrirrúmi í Mercedes-Benz EQS.
Þægindi í fyrirrúmi í Mercedes-Benz EQS.
Vel mun fara um ferðalanga í Mercedes-Benz EQS.
Vel mun fara um ferðalanga í Mercedes-Benz EQS.
mbl.is

Bloggað um fréttina