Land Rover Defender kjörinn best hannaði bíll ársins

Verðlaunabíllinn Land Rover Defender.
Verðlaunabíllinn Land Rover Defender.

Land Rover Defender var í vikunni kjörinn best hannaði bíll ársins 2021 á árlegri verðlaunahátíð World Car Awards í Toronto sem af sóttvarnaástæðum var send út í streymi á netinu.

Þetta er í sjötta sinn sem Jaguar Land Rover hlýtur fyrstu verðlaun fyrir fallega hönnun hjá World Car Awards og hefur enginn af helstu bílaframleiðendum heims hlotið verðlaunin jafn oft og Jaguar Land Rover.

World Car Awards hafa verið veitt undanfarin sautján ár. Árið 2012 var Range Rover Evoque
kjörinn fallegasti bíll ársins, Jaguar F-Type ári síðar, F-PACE árið 2017, Range Rover Velar árið
2018 og ári síðar Jaguar I-PACE.

Nú var komið að Land Rover Defender sem 93 blaðamenn frá 28 löndum veittu hönnunarverðlaun ársins 2021.

„Við það tækifæri sagði Gerry McGovern yfirmaður skapandi hönnunar hjá Jaguar Land Rover að við þróun og hönnun Defender hefðu mörk mögulegrar verkfræði, tækni og hönnunar verið hugsuð til hins ítrasta án þess að tapa sjónum á megin einkennum í arfleifð Defender sem viðhaldið hafa vinsældum hans í áratugi. Góð viðbrögð viðskiptavina um allan heim og mikil eftirspurn eftir Defender bera vott um að vel hafi til tekist til í hönnun þessa nýja þægilega og kraftmikla vinnuþjarks,“ segir í tlklynningu.

mbl.is