Rafmögnuð hátíð hjá Heklu

Starfsmenn Heklu við nokkra rafbíla við höfuðstöðvar fyrirtækisins við Laugaveg.
Starfsmenn Heklu við nokkra rafbíla við höfuðstöðvar fyrirtækisins við Laugaveg.

Rafmögnuð sumarhátíð Heklu verður haldin á morgun, laugardaginn 12. júní, með pompi og prakt. Áhersla verður lögð á rafmagnsbíla en Hekla er í öðru sæti í sölu rafmagnsbíla á árinu. Á boðstólnum verður gómsætar pylsur frá Bæjarins bestu og rjúkandi kaffi frá Kaffitár. Veltibíllinn verður á staðnum og Blaðrarinn kíkir við. 

„Hekla fagnaði stórsigri á dögunum þegar Volkswagen ID.4 var valinn bíll ársins af íslenskum bílablaðamönnum. Hekla fór heim með fjögur verðlaun í farteskinu þegar íslenskir bílablaðamenn tilkynntu á val sitt á bíl ársins í tuttugasta sinn.

Í efstu þremur sætunum um titilinn í ár voru í fyrsta sæti er Volkswagen ID.4, í öðru er Skoda Enyaq og í því þriðja er Volkswagen ID.3. Þar að auki var Volkswagen ID.3 í efsta sæti í flokknum stærri fólksbílar og Volkswagen ID.4 í efsta sæti í flokknum smærri jeppar og jepplingar þar sem Skoda Enyaq var í öðru sæti,“ segir í tilkynningu frá Heklu.

„Það frábært að sjá hve vel hefur verið tekið í nýju rafbílalínur frá Volkswagen og Skoda sem sýnir að vörumerkin eru að gera þetta af heilum hug. Þessi glæsti árangur hefur náðst með því að hanna rafbíla frá grunni sem gerir þeim kleift að nýta plássið betur og tryggja enn betri akstursupplifun. Til að mynda að með nýrri tækni og breyttri þyngdardreifingu reynast afturhjóladrifnu bílarnir mjög vel. Um helgina verður fjórhjóladrifinn ID.4 GTX frumsýndur sem er þá orðinn enn betri fyrir íslenskar aðstæður. Á sama tíma hefjum við forsölu á fjórhjóladrifnum Skoda Enyaq svo það verður nóg um að vera. Okkur hlakkar mikið til að halda loksins veislu og hvetjum sem flesta til að líta við, nóg er plássið hjá okkur og við biðjum fólk að virða fjarlægðamörk,“ segir Jóhann Ingi Magnússon vörumerkjastjóri hjá Heklu.

Í öllum tilvikum eru bílarnir sem komust í úrslit frá Heklu rafmagnsbílar með yfir þrjú hundruð kílómetra drægi. Þetta segja menn sýna hve vinsælir rafmagnsbílar eru og hve opnir Íslendingar séu fyrir vistvænum orkuskiptum.

Fjórhjóladrifinn Volkswagen ID.4 GTX verður frumsýndur við þetta tækifæri en á sama tíma hefst forsala á fjórhjóladrifnum Skoda Enyaq.

Þegar horft er á skráningartölur nýrra bíla eftir fyrstu fimm mánuði ársins er Hekla með 21% af sölu vistvænna bíla á Íslandi.

Volkswagen ID3.
Volkswagen ID3.
Volkswagen ID4.
Volkswagen ID4.
Skoda Enyaq.
Skoda Enyaq.
mbl.is