Nýtt bílasölusvæði rís við Krókháls 7

Aðgengi að nýja bílasölusvæðinu er bæði frá Krókhálsi og Hesthálsi.
Aðgengi að nýja bílasölusvæðinu er bæði frá Krókhálsi og Hesthálsi.

Framkvæmdir eru hafnar að nýju bílasölusvæði að Krókhálsi 7. Um er að ræða nýtt og fullkomið bílasölusvæði sem mun bjóða upp á gott úrval af notuðum bílum frá öllum helstu bílamerkjum.

Nýja bílasölusvæðið mun bera heitið K7 sem vísar í Krókháls 7. Þar verða 5 bílasöluhús og hefur K7 meðal annars gengið frá samningum við Öskju – Notaða bíla, Bílaland BL, Bílabankann og Bílamiðstöðina.

„Staðsetningin á nýja bílasölusvæðinu er sérlega góð á milli Hestháls, þar sem BL er með sölu og þjónustu fyrir Jagúar og Land Rover og Krókháls, þar sem Bílaumboðið Askja er til húsa, en Askja er umboðsaðili Mercedes-Benz, Kia og Honda. Aðgengi á milli Hestháls og Krókháls er því aukið sem bætir aðgengi viðskiptaina að fyrirtækjum á svæðinu.  Í hverfinu er því að byggjast upp miðstöð bílaviðskipta og verður þetta nýja bílasölusvæði góð viðbót við þá flóru sem þegar er staðsett þar,“ segir í tilkynningu..

Hleðslustöðvar og góð lýsing

Aðgengi að nýja bílasölusvæðinu er bæði frá Krókhálsi og Hesthálsi. Hleðslustöðvar verða á svæðinu enda rafbílasala að aukast á komandi árum. Fullkomin lýsing er á svæðinu og mikið verður lagt upp úr snyrtilegum frágangi. Lóðin er rúmlega 23 þúsund fermetrar að stærð og gert er ráð fyrir 800 stæðum. Það er Arkís sem sér um hönnun svæðisins og gert er ráð fyrir opnun á K7 í haust.

Hleðslustöðvar fyrir rafbíla verða á svæðinu.
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla verða á svæðinu.
mbl.is