Peugeot e-208 vinnur nákvæmnisakstur annað árið í röð

Frá Ísorka eRally Iceland 2021.
Frá Ísorka eRally Iceland 2021. Ljósmynd/Birgir og Björn Kristinssynir

Rafbíllinn Peugeot e-208 sigraði í nákvæmnisakstri en dagana 9-10. júlí fór fram Ísorka eRally Iceland 2021. Didier Malaga og Valérie Bonnel tryggðu sér fyrsta sætið í nákvæmnisakstri á Peugeot e-208 frá Brimborg.

Didier og Valérie urðu heimsmeistarar árið 2018, í fyrsta mótinu sem fram fór hér á landi, og í öðru sæti árið 2019. Í öðru sæti í nákvæmnisakstri í ár voru Gunnlaugur og Patrekur á VW ID4 og í því þriðja Hákon og Hinrik á Tesla Model 3.

„Nákvæmnisakstur er ótrúlega krefjandi akstur því frávik frá uppgefnum meðalhraða má ekki vera meira en 1/10 úr sekúndu og eru frávik mæld með mjög nákvæmum GPS búnaði um 200 sinnum á öllum af 21 akstursleið,“ segir í tilkynningu.

Ísorka eRally Iceland er keppni sem er hluti af mótaröð af FIA heimsmeistaramóti sem kallast Electric and New Energy Championship þar sem keppt er í nákvæmnisakstri og sparakstri. Markmið eRally er að kynna nýjustu tækni ökutækja sem ætlað er að spara orku og gefa frá sér minnsta mögulegt magn mengunar og koltvísýrings. Því er einnig ætlað að hvetja alla ökumenn til að breyta akstri með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni bílaumferðar með því að nota rafmagn sem drifkraft ökutækja.

Heimsmeistaramótið í e-rallý er að öllu leyti helgað rafknúnum ökutækjum. Ekki má gera neinar breytingar á bílunum og verða keppendur að geta notað ökutæki sín til daglegrar notkunar.

„Markmið keppninnar er að keyra akstursleið á ákveðnum tíma og ákveðnum meðalhraða. Til viðbótar þarf ökumaður að huga að rafmagnseyðslunni og halda henni í lágmarki. Refstig eru gefin ef keyrt er of hratt eða of hægt, of stutt eða of langt og einnig eru gefin refsistig ef eyðsla í keppninni er umfram uppgefna raforkunotun bílsins,“ segir í tilkynningu.

Peugeot e-208 er 100% hreinn rafbíll með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél og 260 Nm togkrafti. Hann er búinn 50 kWh drifrafhlöðu og er drægi bílsins skv. WLTP mælingu 340 km. Hægt er að hlaða rafhlöðu bílsins bæði heima, í vinnu eða á hraðhleðslustöð og tekur aðeins 30 mínútur að hlaða tóma rafhlöðuna í 80% drægi.

Allir rafbílar Peugeot eru með fjarstýrðum forhitara sem tryggir að bíllinn er alltaf heitur og einnig er varmadæla staðalbúnaður í öllum Peugeot rafbílum. Varmadæla er mikilvægur búnaður í rafbílum, sérstaklega á Íslandi, því hún nýtist best í hitastigi sem er frá -5 til +15. Varmadælan endurnýtir orku úr umhverfinu fyrir miðstöð og drifrafhlöðu bílsins sem gerir því kleift að ekki þarf að nota eins mikla orku frá drifrafhlöðunni til að hita eða kæla bílinn. Það getur munað allt að 50 km eða um 15% af drægni bílsins hvort varmadæla er í bílnum eða ekki. Rafbílar án varmadælu þurfa annars að nota hluta af orku rafhlöðunnar fyrir miðstöðina, segir í upplýsingum frá Brimborg.

Lagt upp í Ísorkurallið 2021.
Lagt upp í Ísorkurallið 2021. Ljósmynd/Birgir og Björn Kristinssynir
Á ferð í Ísorku rafrallinu 2021.
Á ferð í Ísorku rafrallinu 2021. Ljósmynd/Birgir og Björn Kristinssynir
Á ferð í Ísorku rafrallinu 2021.
Á ferð í Ísorku rafrallinu 2021. Ljósmynd/Birgir og Björn Kristinssynir
mbl.is