Nýr Kia Sportage sérstaklega hannaður fyrir Evrópu

Nýr Kia Sportage.
Nýr Kia Sportage. Ljósmynd/Bílaumboðið Askja

Kia frumsýndi í dag fimmtu kynslóð hins vinsæla Sportage sem verið hefur einn söluhæsti bíll bílaframleiðandans undanfarin ár. Í tilkynningu þar um, frá Bílaumboðinu Öskju, segir að Kia Sportage er sérstaklega hannaður fyrir Evrópumarkað því í fyrsta skipti í 28 ára sögu Sportage kemur sérstök Evrópu útfærsla af bílnum.

Nýr Kia Sportage verður í boði með Plug-in Hybrid vél en einnig Mild Hybrid dísilvél. Tengiltvinnútfærslan (Plug-in Hybrid) er með 265 hestafla, 1,6 lítra bensínvél og rafmótorum með 56 km drægi samkvæmt WLTP staðli. Það er því af nógu að taka og væntanlegir kaupendur ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Nýr Kia Sportage.
Nýr Kia Sportage. Ljósmynd/Bílaumboðið Askja

Nýtt og ferskt útlit

Nýr Kia Sportage breytist mjög mikið í útliti og hönnun. Stórt og kraftmikið tígrisnefs-grillið að framan, sem er eins konar ættarsvipur Kia, og fallega hönnuð LED ljósin gefa fögur fyrirheit um fágun og framsækni. Framendinn tengist vel við flæðandi og sportlegan hliðarsvip bílsins. Kraftalegur afturhluti og rennileg afturljós fullkomna svo fallegar formlínur og glæsileika bílsins, segir í tilkynningu.

Innanrýmið er nútímalegt en um leið fágað og fallegt þar sem vandað er til verka og efnisval er til fyrirmyndar. Stjórnrýmið er fullkomlega aðlagað að þörfum ökumannsins. Stjórntæki eru öll innan þægilegrar seilingar, sem og skjáir og stjórnrofar. Ökumaður getur því einbeitt sér fullkomlega að akstrinum. Tveir 12,3 tommu snertiskjáir gefa upplýsingar um allt sem tengist akstrinum og tengir ökumann og farþega við umheiminn í gegnum tæknivædd forrit.

Farangursrými bílsins hefur stækkað um 80 lítra frá síðustu kynslóð og er nú 591 lítrar en með því að fella aftursætin niður stækkar það í 1.780 lítra.

Kia Sportage er afar tæknivæddur bíll og býður upp á allt það nýjasta frá Kia í akstursaðstoðarkerfum og þægindum. Nýr Sportage er samstarfsverkefni hönnunardeilda Kia í Suður-Kóreu, Þýskalandi, Bandaríkjunum og Kína. Ný útfærsla Sportage er væntanleg til Íslands í byrjun næsta árs en bílaumboðið Askja er þegar byrjað að skrá fólk á áhugamannalista.

mbl.is